Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Page 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Page 16
á lögum og öðrum ráðstöfunum með það að markmiði að styrkja atvinnu íslenskra farmanna og flutningastarfsemi á sjó. 40. sambandsþing Farmanna- og fiski- mannasambands íslands lýsir þungum á- hyggjum varðandi atvinnumál farmanna. Fjöldi farmanna á kaupskipum í útgerð íslenskra aðila fer stöðugt fækkandi. Á síðasta áratug hefir ársstörfum farmanna fækkað um nálægt tvo þriðju hluta og um næstu áramót er ljóst að ekkert kaupskip í utanlandssiglingum mun sigla undir íslenskum fána. Þingið bendir á í þessu sambandi að öll lönd Vestur Evr- ópu styrkja sjóflutninga sína í alþjóðlegri samkeppni með skattalegum aðgerðum, bæði hvað varðar áhafnarkostnað og al- menna skattlagningu. í þessu sambandi vitnar þingið í nýjustu “hvítbók” ESB sem fjallar um sjóflutninga en þar segir m.a.: “Framkvæmdastjórn ESB hvetur stjórnvöld til að taka til athugunar og e.t.v. að taka upp ákvæði sem nú eru til staðar í ESB kerfinu, þar með talið niður- fellingu skatta og annarra álaga bæði fyr- ir sjómenn og útgerðir. Þessi skattalegu ákvæði gera bæði skip og farmenn sam- keppnishæfari þar sem rekstrarkostnað- urinn lækkar verulega. Lækkun skatta og launatengdra gjalda hjá farmönnum og rekstrarskatta hjá útgerðum niður í núll, er það mesta sent ESB samþykkir þ.e. algjört skattleysi fyrir farmenn og út- gerðir.” l’ótt sjóflutningar rnilli íslands og annarra landa sem eru í alþjóðlegri sam- keppni séu að mestu í höndum íslenskra flutningafyrirtækja fara þeir fram með er- lendum skipum mönnuðum erlendum á- höfnum. Á hverjum einasta degi ársins er fjöldi útlendra kaupskipa á siglingu við strendur landsins að losa eða lesta í höfnum þess. Er svo langt komið að “is- lenskt skipafélag” hefir tekið að sér flutninga fyrir varnarliðið á íslandi án þess að flytja nokkurn skapaðan hlut. Er þessi staða sem upp er komin vegna þess að útgerðarfyrirtækjum í sjóflutningum hefir ekki verið sköpuð sambærileg sam- keppnisstaða og tíðkast i nágrannalönd- unum. Hvað varðar strandflutninga má segja að þeir hafi nær algjörlega lagst af og færst á stórar flutningabifreiðir enda þótt sannað sé að þungaflutningar á vegum landsins valdi margföldu sliti á vegunum miðað við sambærilegan fjölda fólksbif- reiða auk þess sem flutningar á olíuvör- um og hættulegum efnum valda mikilli hættu á mengun i viðkvæmri náttúru landsins og vatnsbólum einstakra sveitar- félaga, auk stóraukinnar hættu fyrir al- menna vegfarendur þjóðveganna. Þá gagnrýnir þingið að íslenskl ríkisfyrir- tæki hefir nú hætt að gera út sements- flutningaskip og farið að gera út á flutn- ingsjöfnunarsjóð og neytendur. Það er krafa þingsins að siglingum til Árni Sverrisson ræðir málin við þingheim. og frá íslandi, og við strendur þess, verði í framtíðinni sinnt af íslenskum skipum, mönnuðum íslenskum áhöfnum, einnig að litið sé á siglingar sem sjálfstæðan at- vinnuveg, nauðsynlegan sjálfstæðri ey- þjóð, atvinnuveg sem geti skilað miklum tekjum í þjóðarbúið sé rétt á málum haldið. Öryggismál 1.1 Um öryggi sjófarenda Þrátt fyrir síauknar kröfur um tækja- búnað í öryggisskyni, hefur það sýnt sig í nýlegum alvarlegum og hörmulegum sjó- slysum að neyðartilkynningar berast ekki eins og lil er ætlast. 40. sambandsþing Farmanna- og fiski- mannasambands Islands, haldið í Reykja- vík dagana 28. - 30. nóvember 2001, krefst þess að stjórnvöld tryggi með öll- um liltækum ráðum að sá búnaður og / eða reglur sem krafist er, virki eins og lil er ætlast. Þingið krefst þess jafnfranu að stjórn- völd efli starfsemi Rannsóknarnefndar sjóslysa, þannig að hún sé ávallt í stakk búin með besta fáanlega tækjabúnaði að leita skýringa á orsökum sjóslysa, ekki síst, þegar skip sökkva án sjáanlegra skýringa á örskotsstundu. 1.2 Um Ieitar- og sjóbjörgunarstöð 40. sambandsþing Farmanna- og fiski- mannasambands íslands, haldið í Reykja- vík dagana 28. - 30. nóvember 2001, skorar á ríkisstjórnina að fela Landhelg- isgæslu íslands, strandarstöðvaþjónustu Landssíma íslands og Tilkynningar- skyldu íslenskra skipa að annasl santeig- inlega, leitar- björgunar- og öryggisþjón- ustu við skip í íslenskri lögsögu um- hverfis ísland og leggja þar með á hilluna hugmyndir urn að búa til enn eina örygg- ismiðstöðina sem annast á öryggi sæfar- enda. Þingið mundi hins vegar fagna heild- stæðum sameiningarhugmyndum um eina leitar- og sjóbjörgunarstöð þar sem núverandi MRCC coastal og MRCC oceanic, verði sameinaðar samanber reglugerð nr. 207/1990, “um skipulag leitar-og björgunar á hafinu við strendur íslands”, þar sem allir þættir væru undir einum hatti og tekið mið af IAMSAR (- International Aeronautical and Marilime Search and Rescue Manual). Jafnframt verði séð fyrir því að alnrenn fjarskiptaþjónusta við sæfarendur verði ekki skert frá því sem nú er. 1.3 Um langtímaáætlun í öryggismál- um sjófarenda 40. sambandsþing Farmanna- og fiski- nrannasambands íslands, haldið í Reykja- vík dagana 28. - 30. nóvember 2001, fagna því framtaki samgönguráðherra að koma á langtímaáætlun um öryggismál sjófarenda. Þingið leggur ríka áherslu á að framkvæmd áætlunarinnar verði tryggð með tilheyrandi fjárveitingu. Mennta- og atvinnuréttindamál 2.1 Um frumvarp til laga um at- vinnuréttindi skipstjórnarmanna 40. þing Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands haldið dagana 28. - 30. nóvember 2001, krefst þess að sam- gönguráðherra taki tillit til umsagnar og kröfu FFSÍ varðandi lög um áhafnir skipa sem liggur fyrir Alþingi og breyti frumvarpsdrögunum til samræmis við umsögn FFSÍ. Greinargerð: Samgönguráðherra hefur enn á ný lagt fyrir Alþingi frumvarp um áhafnir skipa og enn og aftur hundsað umsögn FFSI. Það er gersamlega óviðunandi að sjónar- mið FFSÍ skuli vera sniðgengin með þessum hætti. Nái frumvarpið fram að ganga óbreytt leggst af sú starfsþjálfun skipstjórnarmanna sem hefur farið fram um borð í skipunum fram að þessu vegna þess að staða 2. stýrimanns leggsl af, en sú staða hefur nýst á þann hátt að 2. stýrimaður hefur jafnframt haft með höndum stjórn vinnu á dekki og staðið vaktir í brú á siglingum og leyst af sem 1. stýrimaður og þannig undirbúið sig fyrir framtíðar skipstjórn. Það er alls- endis óviðunandi að samgönguráðherra skuli leggjasl á sveif með útvegsmönnum í því að leggja niður störf menntaðra manna um borð i skipunum. Frekar ætti hæstvirlur ráðherra að leggjast á sveif með FFSÍ og reyna að stuðla að því að laða unga menn til ntennta í skipstjórn- arfræðum en eins og kunnugt er hefur 16 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.