Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Side 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Side 28
Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar - grœns framboðs Þeir einir, r sem mænt hata Meginókostur frumvarps sjávarútvegs- ráðherra er sá að mínu mati að það festir í sessi í grundvallaratriðum óbreytt kvótakerfi með öllum þess annmörkum. Frumvarpið felur ekki í sér neina raun- hæfa dlraun til að sætta sjónarmið og taka á þeim atriðum sem mestum deilum hafa valdið á umliðnum árum. Má þar nefna öryggisleysi og stöðu sjávarbyggð- anna, deilur sem tengjast framsali veiði- heimilda og möguleikum einstakra aðila til að hagnast griðarlega á kvótasölu eða leigu, samþjöppun í greininni og þróun í átt til einhæfari og einsleitrari rekstrar, stöðu landvinnslunnar, brottkastið, um- gengni um auðlindina og vistvæna þróun og svo framvegis. Gjaldtakan sem frumvarpið gerir ráð fyrir, vel að merkja í annars óbreyttu kerfi, er hálfgerð sýndarmennska því ó- víst er að greiðslurnar verði mikið um- fram það sem fellt verður niður á móti, nema í einstökum árum. Ég vil þó taka fram að gjaldtakan sem slík er í mínum huga hefur aldrei verið aðalatriði málsins ljóslega víðsfjarri því að geta orðið nokk- ur sáttagrundvöllur. Þeir einu sem mænt hafa á gjaldtöku gjaldtökunnar vegna, jafnvel þótt aðeins sé um táknrænt gjald að ræða, geta glaðst. Stefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs er að gera grundvallarbreyting- ar á kerfinu. Við viljum losa veiðiréttinn út úr núverandi kerfi með rólegri fyrn- ingu þannig að ekki komi til neinnar kollsteypu í greininni. Síðan verði veiði- réttindunum endurráðstafað að hluta gegnum leigumarkað, að hluta til sjávar- byggðanna með byggðatengingu og að hluta til útgerðarinnar með afnotasamn- ingum. Auk þess þarf að taka um nýting- arstuðla og leggja grunn að vistvænni þróun í greininni. Það dapurlegasta af öllu er að verði frumvarp sjávarútvegsráðherra barið í gegn þá halda deilurnar áfram, sáttin sem lofað var fyrir síðustu kosningar er úti i hafsauga og ekki skapast sú festa og sá starfsfriður í málefnum sjávarútvegs- ins sem svo sannarlega er kominn tími á. SteingrímurJ. Sigfússon. heldur spurningin um grunnfyrirkomu- lagið sjálft, fiskveiðistjórnunarkerfið. Þar stendur ekki til að gera neinar breytingar nema þær sem eru heldur i öfuga átt, átt til þess að leyfa meiri samþjöppun veiði- heimilda. Þessi niðurstaða er alveg aug- 28 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.