Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Blaðsíða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Blaðsíða 41
Kokkurinn og kakósúpan í bók Lúkasar Kárasonar, Syndir sæfara, segir frá því þegar Lúkas réði sig á unga aldri sem kokk á 35 tonna reknetabát frá Djúpuvík. Enga reynslu hafði hann af eldamennsku og þótt karlarnir kvörtuðu ekki þá hældu þeir ekki matseldinni heldur. Lúkas ákvað að gleðja þá með því að elda kakósúpu í eftirrétt. Um þá tilraun segir í bókinni: Það var bölvaður veltingur svo mér þótti ráðlegast að nota stærsta pottinn. Hann var síðan hálffylltur af vatni og kakói, sykri og salti bætt út í þar til bragðið var eins og það átti að vera að mínu viti. Að síðustu hvolfdi ég kílói af kartöfluméli út í og þar með hófust lætin. Ég var rétt byrjaður að hræra i pottinum þegar sleifin sat hálfföst í brúnni leðju sem sífelft þandist út og brátt varð potturinn fullur. Nú var bara eitl til ráða, ég greip kastarholu og mokaði upp úr pottinum þar til hann var um það bil hálfur. Þá hófst sama baráttan á ný. Ég bætti við vatni og hrærði og enn fylltist potturinn og enn varð ég að ausa upp úr honum. Sem betur fór var auðvelt að losna við offramleiðsluna. Eg slengdi henni upp á dekk út um lúkarsopið. Þetta virtist von- laus barátta, svarta skánin á botninum þykknaði stöðugt. Ég var á þessu stigi í súpugerðinni kominn í rnikla tímaþröng, karlarnir feru að koma í mat og síst af öllu vildi ég að þeir sæju ófarir mínar. Nú var bara eitt til ráða, að fjarlægja öll sönnunargögn. Restin af því sem í pottinum var flaug upp á dekk og potturinn var síðan falinn. Skánina mundi ég fjarlægja þegar ég fengi réttu verkfærin til þess. Það yrði víst enginn eftirréttur í dag. Ég var rétt sestur á bekkinn til að jafan mig eftir þessa törn og þurrka svitann þegar ég heyrði allt í einu mikinn dynk upp á dekki og í kjölfarið öskur og formælingar af þeirri tegund sem Strandamönnum er einum lagið. Ég hljóp upp í tröppurnar og leit út á dekkið. Þar sá ég mér lil mikillar skelfingar hvar einn af körlunum veltist um bjargarlaus, allur útataður í brúnni leðju. Lað þurfti ekki að útskýra fyrir mér hvað hafði gerst. Ég lét mig hverfa aftur niður í lúkarinn, mér leið ekki vel og ekki batnaði h'ðan mín þegar heyrði rödd aftan á dekkinu kalla: „Dast þú, Nonni minn?” og svo kom svarið: „Passið ykkur strákar, ég er allur útataður í drullu. Helvítis kokkurinn hefur skitið á dekk- ið.” Bóndinn og bindið Bóndi nokkur varð fyrir því óláni að hryssa sem hann átti meiddist á fæti og kalla þurfti til Jónu dýralækni. Hún mætti á svæðið, saumaði legginn og sagði að þetta yrði nú allt í lagi. Þetta væri bara skinnspretta en gott væri að leggja dömubindi yfir sárið því það myndi eflaust vilsa úr því og dömubindin væru svo rakadræg. Bóndinn steðjaði þegar í kaupstað og snar- ast inn í apótekið þar sem hann biður um dömubindi. Af- greiðslustúlkan spyr hvernig bindi hann vilji, nætur, með vængj- um eða eitthvað annað. Bóndinn verður nú eitthvað hikandi og óöruggur með sig en segir svo: ,Ja - það veit ég nú ekki, en rifan er 18 sentimetra löng”. Óskirnar þrjár Ung kona var nýskilin við eiginmann sinn og fór til lítils strandbæjar til að sleikja sárin. Dag einn gekk hún á ströndinni og rifjaði upp hve eiginmaðurinn fyrrverandi hafði farið illa með hana við skilnaðinn. Þá rak hún tærnar í töfralampa i fjörunni. Hún nuddaði lampann og andinn sveif upp. Hann spurði hvað það væri sem angraði hana svo mjög og hún rakti honurn raunir sínar. Til að létta henni lund sagðist andinn ætla að gefa henni þrjár óskir. En þar sem hann væri á móti hjónaskilnuðum ætlaði hann að gefa fyrrverandi eiginmanni hennar þrisvar sinnum það sem hún óskaði sér. Konunni fannst þetta yfirmáta óréttlátt en bar fram fyrstu óskina. Hún óskaði þess að hún ætti einn millj- arð dollara. Andinn hneigði sig og á sama augnabliki spratt upp fjallhár haugur af dollaraseðlum. Andinn minnti hana á að nú hefði sá fyrrverandi eignast 10 milljarða. Konan réði sér vart fyrir bræði þegar hún bar fram aðra ósk sem var höll við einkaströnd. Á svipstundu blasti við glæsileg höll en andinn benti á að nú ætti maðurinn tíu slíkar hallir. Við þessa staðreynd varð konan hugsi. Þegar andinn var að gefast upp á því að bíða eftir síðustu óskinni sagðist hún vera tilbúin. Andinn kvaðst enn vara hana við: Eiginmaðurinn fyrrverandi fengi tíu sinnum það sem hún óskaði sér. -Það skiptir mig engu, sagði konan. -Ég er tilbúin og síðasta ósk mín er .... „að ég fæði tvíbura”. !5sa« daclur - legur- ásþétti - V pakkningarcfni - smurfeiti og olíur ■ smnrkerfi - hreinsicfni - mnsA. rafmótorar - gfrar - tannhjól - keðjur - reimakífur - reimar - og alt annað til sjós og lands http://www.poulsen.is poulscn(a>poulsen.is Fagmennska og þjónustugæði í fyrirrúmi Sjómannablaðið Víkingur - 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.