Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Blaðsíða 48
SÉREIGNARSPARNAflUR
Almennt um
séreignarsparnað
Kostirnir við séreignarsparnað eru mar-
gir. Fyrir utan þann augljósa, sem er spar-
naður, má nefna mótframlag atvinnurekan-
da sem í dag er 2% samkvæmt almennum
kjarasamningum þar við bætist mótframlag
frá ríki sem er allt að 0,4%.
Þeir sem leggja fyrir í séreignarsparnað fá
frestun á tekjuskatti á upphæðinni þar til
hún er tekin. Enginn eignar- eða fjármagn-
stekjuskattur er greiddur af sparnaðinum.
Séreignarsparnaður erfist að fullu og er
erfðaskattsfrjáls.
Sérstaða Sameinaða
lífeyrissj óðsins
1. Góð ávöxtun
Samkvæmt úttekt og samanburði Morg-
unblaðsins á séreignarsparnaði, 24 okt
2001, var Sameinaði lífeyrissjóðurinn með
hæstu ávöxtun á bæði erlendum hluta-
bréfasjóðum og innlendum skuldabréfa-
sjóði (sjá hér til hliðar).
Ávöxtunarleið 2, sem er innlendur
skuldabréfasjóður hefur gefið góða ávöxtun
og er hagstæð leið fyrir þá sem vilja taka
litla sem enga áhættu með séreignarsparnað
sinn. Til samanburðar má nefna hér rauná-
vöxtun hjá bönkum og sparisjóðum á verð-
tryggðum lífeyrisbókum.
2. Fjölbreyttar ávöxtunarleiðir.
Það er um margar ávöxtunarleiðir að ræða hjá
okkur. Við bjóðum 8 ávöxtunarleiðir og erum i
samstarfi við Verðbréfastofuna og Lífeyrissjóðinn
Lífiðn sem þýðir að við getum boðið fjölbreyttar
hlutabréfaleiðir með bæði virkri og óvirki stýr-
ingu.
3. Hægt að búa til sitt eigið
verðbréfasafn.
Einnig er hægt að nýta sér fleiri en eina ávöxtun-
arleið í einu og búa sér þannig til sitt eigið ávöxt-
unarsafn. Því fylgir enginn kostnaður að færa sig á
milli leiða ef fólki sýnist svo, úr t.d. hlutabréfasjóð-
um yfir í skuldabréfasjóð, allt eftir þörfum hvers og
eins.
4. Markviss upplýsingagjöf til við-
skiptavina.
Yfirlit eru send út þrisvar ári. Yfirlitin eru
mjög ítarleg en á þeim er sundurliðað framlag
launþega, framlag launagreiðanda og fyrir hvaða
mánuð er verið að greiða. Auk þess kemur fram á
yfirlitunum hver ávöxtun var á tímabilinu á þeim
ávöxtunarleiðum sem Sameinaði lífeyrissjóðurinn
býður. Allar ávöxtunarleiðir eru gerðar upp dag-
lega þannig að viðskiptavinir okkar geta hvenær
sem er fengið að vita hvernig ávöxtun fjármuna
þeirra er háttað. Markaðsyfirlit fylgir einnig með
yfirlitunum en þar er fjallað um stöðu fjármála-
markaða og gefin ráðgjöf um lífeyrissparnað.
5. Lægsta umsýslugjald af hluta-
bréfa- og skuldabréfaleiðum
Greinin sem birt var í Morgunblaðinu 21 októ-
ber 2001, um séreignarlífeyrissparnað, gaf okkur
hjá Sameinaða lífeyrisjóðnum byr undir báða
vængi, en þar kom fram að Sameinaði lífeyris-
sjóðurinn er með lægsta umsýslugjaldið (0,1-
0,2%) af þeim vörsluaðilum sem bjóða hluta-
bréfa- og skuldabréfaleiðir en önnur fjármálafyr-
irtæki voru með allt að 1,5% umsýslugjald.
Umsýslugjöld skipta miklu máli því að á löng-
um tima geta þau numið milijónum.
Olikt mörgum öðrum fjármálafyrirtækjum, er
enginn munur á kaup- og sölugengi sem þýðir að
sjóðurinn kaupir bréf viðskiptavina sinna á sama
gengi og hann selur þeim þau á.
Ár 1999 2000 2001 Meðalraun- ávöxtun 1999-2001
Sameinaði lífeyrissjóðurinn leið 2 6,4% 6,6% 7,0% 6,67%
íslandsbanki (* lífeyrisbók stofnuð á árinu 2000) * 5,99% 6,35% 6,17%
Sparisjóðirnir Lífsval 1 5,63% 6,07% 6,46% 6,04%
Búnaðarbanki 5,5% 6,36% 6,32% 6,04%
Landsbanki 5,5% 6,02% 6,4% 5,96%
Auk þess bjóðum við sex hlutabréfaleiðir fyrir þá sem vilja taka
áhættu í von um hærri ávöxtun.
Meðalávöxtun allra ávöxtunarleiða Sameinaða lífeyrissjóðsins
1997 -2001
*Meðalávöxtun 1999-2001
6. Virkt innheimtuferli
Hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum er séreignarsparnaður innheimtur i
gegnum lögmenn sjóðsins við vanskil, samhliða öðrum lífeyrissjóðsið-
gjöldum. Þessu hefur verið ábótavant hjá bönkum, sparisjóðum og
verðbréfafyrirtækjum og hafa viðskiptavinir þeirra tapað peningum af
þeim sökum. Þetta er gríðarlega mikilvægt en gleymist oft við val á
vörsluaðila.
7. Reiknivél á heimsíðu
Nú er hægt að reikna út ávöxtun séreignarsparnaðar á heimasiður
okkar.
Þú slærð inn það tímabil sem þú vilt fá upplýsingar um og tölvan
reiknar út fyrir þig ávöxtunina og birtir einnig gengisþróun á línuriti.
Auðvelt og þægilegt.
Nánari upplýsingar um séreignarsparnað er að finna á heimasíðu okkar,
www.lifeyrir.is. og í síma 510-5000/800-6865.
Hófundur er kynningarfulhrúi Sameinaða lífeyrissjóðsins.
Arthúr Vilhehn Jóhannesson