Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Side 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Side 34
Vilhjálmur Ólafsson er maður sem ekki lcetur raska ró sinni að ó- þörfu. Þegar bílaferja sem hann var skipverji á lenti í hafsnauð á Miðjarðarhafi tók hann saman föggur sínar í makindum og pakkaði niður í ferðatösku um leið og hann gerði myndavélina klára. Hann horfði á skipið sökkva - fimm dögum síðar Skipið sem „fórst” tvisvar í sömu vikunni Það er fátítt að sami mað- ur lendi tvisvar í sjávar- háska á sama skipi í sömu vikunni. Þetta henti Vil- hjálm Ólafsson í Miðjarð- arhafinu árið 1980. Vil- hjálmur var eini íslenski sjómaðurinn um borð í sænska ro-ro skipinu Zen- obia sem bjargað var þann 2. júní en steinsökk svo þann 7. júní eða fimm dög- um síðar. Vilhjálmur Ólafsson er fæddur á Sel- tjarnarnesinu árið f930. Hann lauk minna stýrimannsprófi frá Stýrimanna- skólanum og hefur alla sína starfsævi verið á sjó. Framan af var hann á bátum og togurum hér við land en árið 1979 venti hann sínu kvæði í kross og fór til Svíþjóðar og bjó þar og starfaði í tæp fimmtán ár. Nýverið flutti Vilhjálmur inn smáhýsi á Hrafnistu í Reykjavík i gott herbergi með aðgang að baði og litlu eld- húsi. Vilhjálmur, sem lengi hefur spilað á harmóniku, dreif sig í það að læra á hljómborð og hefur sótt námskeið í vetur. Á nótnaborðinu eru nótur af þekktum lögum svosem Smile eftir Chaplin, Morn- ing Has Broken eftir Cat Stevens og fleiri þekkt lög. Hann segist hafa mikið garnan af þessu tómstundargamni sínu og gaman af því að fara í skólann vikulega. En aftur að ævintýrinu í Miðjarðarhaf- inu fyrir rúmum tuttugu árum. Þegar Vilhjálmur var kominn til Svíþjóðar réði hann sig um borð í Zenobia þann 6. des- ember árið 1979 en skipið var þá ný- kornið úr skipasmíðastöð Kochums í Malmö, ásamt tveimur systurskipum. „Zenobia var svokallað ro-ro skip sem flutti stóra Outningabíla frá meginlandi Evrópu yfir Miðjarðarhafið til Sýrlands. Tilkoma þessa skipa breytti miklu fyrir bílstjórana því þeir sluppu við stóran og erfiðan krók yfir Tyrkland. Vegirnir þar í landi voru slæmir og erfiðir, bílstjórarnir þurftu að sofa í bílunum og algengt að þeir væru limlestir eða drepnir af þjófa- flokkum sem sóttu í þennan rándýra og eftirsótta farm. Áhöfnin var að mestu leyti frá Svíþjóð og svo ég sem var eini íslendingurinn. Farþegar á þessum skip- um voru yfirleitt fáir, utan bílstjóranna sem sáu um farminn. Bílstjórarnir voru frá ýmsum löndum, Svíar, Júgóslavar og Grikkir voru fjölmennastir. Þessi örlaga- ríka ferð okkar hófst í Koper í gömlu Júgóslaviu og átti að enda í Tartus í Sýr- landi,” segir Vilhjálmur. Óeðlilegar hreyfingar Zenobia lagði úr höfn í Koper þann 30. maí 1980 klukkan 00.15. í skýrslu sænsku sjóslysanefndarinnar sem gefin var út eftir slysið kemur fram að þann 31. maí hafi fyrsti stýrimaður gert tilraun með að kúpla frá sjálfstýringu yfir á stýr- ið. Við það konr 7° halli á skipið. Þessa tilraun gerði hann vegna þess að stýri- menn höfðu rætt sín á milli að skipið léti illa að stjórn og stöðuleiki þess væri alls ekki fullnægjandi. ,,Ég man að mér þóttu líka hreyfingar skipsins einkennilegar. Vanir sjómenn hafa sterka tilfinningu fyrir því hvernig skip eiga að hreyfast og hvað er eðlilegt og hvað óeðlilegt,” segir Vilhjálmur. Sjóferðin niður Adríahafið og inn í 34 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.