Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Page 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Page 35
Miðjarðarhaf var að öðru leyti tíðindalít- >1. Um borð voru í 153 menn, áhöfnin og bílstjórar sem voru 121 i allt. Veður var gott, hægt að sóla sig á dekkinu og veit- ingastaðir um borð sem seldu góðan mat og drykk. Vilhjálmur segir að skipið hafi vart haggast á siglingunni, enda Zenobia engin smásmíði; 165 metrar að lengd, 23 ntetrar á breidd og hæð frá kili að efra dekki um 22 metrar. Skipið var fulllestað en um borð voru 117 stórir flutningabíl- ar, 17 trailerar og einn fólksbíll eða sam- tals 135 bíll. Heildarþungi farmsins var 3.908 tonn. Þann 2. júní, laust eftir miðnætti, var Zenobia um það bil 10 sjómílum úti fyrir Cape Delos á Kýpur. Vindur var vestlæg- ur, ca. 4/m á sekúndu og lítill sjór. í brúnni var annar stýrimaður ásamt öðr- um skipverja og einum bílstjóra. í viðtali við Sydsvenska dagbladet eftir slysið seg- h bílstjórinn frá þessu atviki. Hann hafi komið í brúna, eins og svo margir aðrir því þetta nýja skip þótti mjög áhugavert, og verið vitni að því þegar stýrimaðurinn fór að sýna þeim hvernig sjálfstýringin virkaði. Pað skipti engum togum að skipið lagðist á bakborða á 3 sekúndum og við það kom hreyfing á farminn. Hall- 'nn á skipinu var allt í einu kominn í 40° á örfáum sekúndum en átti eftir að enda í 45° halla. Allir í bátana Stýrimaður gaf skipun um að gera björgunarbátana klára á bakborða og Farmurinn fór á rú og stú. gera áhöfn og farþegum viðvart um hásk- ann. Samkvæmt sjóslysaskýrslunni heyrðist neyðarkalla May-Day í Haifa í ísrael klukkan 12.30 eða nokkrum mín- útum eftir að skipið fór á hliðina. ,,Ég hafði verið á vakt unr kvöldið og var nýsofnaður þegar skipið lagðist á hliðina. Ég var í rnjög góðum klefa mið- skips og kojan mín var þvert á skipið, höfðalagið á stjórnborða. Þegar ég vakn- aði stóð ég eiginlega í fæturna í koj- unni,” segir Vilhjálntur og hlær við. ,,Ég var svolitla stund að átta mig á aðstæð- um og hvað eiginlega hafði konrið fyrir skipið. Ég vissi senr var að svona stórt og nrikið skip sykki ekki bara sisvona í blíð- skaparveðri. Ég tók sanran föggur mínar í klefanum, pakkaði mínu dóti ofan í ferðatöskuna, setti á mig björgunarvestið sem var klárt á veggnunr og að síðustu tók ég með mér myndavélina mína.” Hallinn á ferjunni fór í 45 gráður. Sjómannablaðið Víkingur - 35

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.