Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Side 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Side 37
að spyrjast fyrir á öllum þeim stöðum sem við komum á. Ég fékk líka upplýs- ingar frá júgóslavnesku bílstjórunum og heimafólki á Kýpur. Einnig fékk sænska sjómannablaðið myndir lánaðar og einnig sænska sjóslysanefndin. Ein af nrínum myndum er í skýrslu sjóslysa- nefndarinnar sem þeir síðan sendu mér,” segir Vilhjálmur. Zenobia sekkur við höfnina og áhöfnin horfir á Zenobia var rétt við með aðstoð björg- unarbáta og síðan dregin að landi við Larnacka á Kýpur. Þar lá skipið rétt fyrir utan ströndina meðan áhöfnin lagaði það sem laga þyrfti og starfsmenn trygginga- félaga voru að meta skemmdir á skipi og fragt. „Ég var síðan fluttur á hótel í Larnacka og fór að vinna um borð þann 6. júní. Björgunarmenn höfðu náð skipinu á rétt- an kjöl og allt virtist í sómanum. Ég var á vakt um borð og rétt fyrir miðnætti kemur slagsíða á stjórnborða og skipið skellur 10° á bakborða og skömmu síðar um aðrar 10°. Nú var atburðarrásin öll hraðari því skipið fylltist fljótt af sjó þar sem hliðarlúgur voru opnar. Sem betur fer var bara áhöfnin um borð og við yfir- gáfum skipið í hasti. Ég tók til við að taka myndir á vélina en því miður var ennþá meira myrkur en þegar fyrra slysið varð og ég kunni bara ekki nóg á ljósop- ið á vélinni. Allar þær myndir misheppn- uðust, því miður. Við stóðum á strönd- inni á Larnacka um nóttina og horfðum á þegar þetta risaskip sökk á endanum beint fyrir framan nefið á okkur í blíð- skaparveðri,” segir Vilhjálmur. Enginn lífsháski í Miðjarðarhafinu Vilhjálmur vill gera lítið úr þeim lífs- háska sem hann lenti i þetta sumar fyrir rúmum tuttugu árum. Hann nefnir að is- lenskir sjómenn séu að fást við allt önn- ur náttúruöíl á miðunum hér við land, þótt auðvitað verði sjóslys alls staðar. „Fyrir mann eins og mig var þetta ekki í sjávarháski í þeim skilningi. Ég hafði siglt á bálurn og togurum við ísland og þá er maður í lífshættu um leið og mað- ur dettur í sjóinn. Ég hafði til dæmis lent í því á Hallveigu Fróðadóttur mörgum árurn áður að við fengum á okkur brot og skipið fór á hliðina, á bakborða einsog Zenobia. Aðstæður voru allt aðrar. Þetta var um hávetur og við að fiska fyrir sölu í Þýskalandi. Búið var að bóka sölu- dag og tíminn naurnur. Við höfðu verið á Halanum og venjulega var siglt suður fyrir land í átt að meginlandinu en vegna þess að vindur snerist í hvassa sunnanátt var ákveðið að sigla norður fyrir land. Það var geysilegur afli um borð því við dekkið var fullt og mannskapurinn enn að gera að aflanum á leiðinni. Skyndilega reið þessi feiknaalda yfir skipið, slengdi því á hliðina og aflinn á fleygiferð. Það sem skelfdi okkur mest var að ekki var búið að ganga frá trollinu og hætta á að það færi í skrúfuna. Þá var ég virkilega hræddur en þetta blessaðist allt sem bet- ur fer.” Vilhjálmur segir að aðstæður sjómanna við ísland séu slíkar að Miðjarðarhafið veki ekki skelfingu, þótt auðvitað verði sjóslys þar sem annars staðar. Kuldinn og veðurhamurinn við ísland gefi mönnutn engan grið ef eitthvað kemur uppá. Þess vegna verða mannbjarganir hér við land alltaf þrekvirki, segir Vilhjálmur og nefn- ir þau tvö sjóslys sem orðið hafa í vetur, þegar Svanborg SH fórst við Svörtuloft og Bjarmi við Vestmannaeyjar. „Sigmaðurinn á bandarísku þyrlunni sem bjargaði stráknum við Svörtuloft er rnikil hetja. Sama er að segja um sjó- manninn sem gat haldið sér svona lengi á floti í þessu líka veðri. Þetta eru sann- kallaðar mannraunir en ekki þessi slag- síða sem við fengum á okkur á Zenobiu,” segir Vilhjálmur Ólafsson sem lenti í sjávarháska tvisvar í sömu vikunni og það um borð í sama skipinu. Klukkan á Bessastöðum I fyrstu heimsókn Davíðs Oddssonar til Bessastaða, eftir að Ó- lafur Ragnar Grímsson tók við embætti forseta, var Davíð vísað til sætis á stól sem stóð undir heljarmikilli veggklukku. Klukkan var gjöf til forsetaembættisins frá Gorbatsjov fyrrum Sovétleið- toga. Þar sem þetta var kommúnisk klukka gekk mjög illa að fá hana til að ganga. Forsetanum hafði þó tekist að hafa upp á gömlurn úrsmið sem með lagni tókst að lcoma henni á stað, en ekki var þó viðlit að fá hana til að ganga rétt. Þessi fundur Davíðs og forsetans stóð lengi yfir en þar kom að forsætisráðherra stóð upp úr stólnum og gekk til hliðar. í sama mund hrundi klukkan af veggnum, lenti á sterklegum stólnum sem Davíð hafði setið á og mölbraut hann. Davíð brá svo að hann náfölnaði og kom ekki upp orði. Ólafur Ragnar virti fyrir sér verksummerkin hugsandi á svip en sagði svo og gætti gfernju í röddinni: „Hún var alltaf heldur of sein þessi klukka.” Af ljóskum Þrjár ljóskur voru saman á göngu á ströndinni þegar þær fundu töfralampa. Þær kölluðu á andann sem bauð eitt krafta- verk á hverja. Sú fyrsta sagðist vera orðin leið á að vera heimsk fjóska og vildi verða leiftrandi gáfuð. Á sömu stundu breyttist hún í svarthærða fegurðardís. Sú næsta kvaðst líka vera þreytt á að vera heimsk ljóska og langaði til að verða svolítið gáfaðri. Andinn hreyfði höfuðið og í stað ljóskunnar var komin rauð- hærð kona. Sú þriðja sagðist svo sem vita að hún væri heimsk En málið væri bara það, að hún kynni því vel og hefði mestan áhuga á að halda áfram að stunda hið ljúfa líf. Hún vildi því aðeins óska sér þess að verða enn heimskari en hún væri núna. Andinn brá við fljótt og ljóskan breyttist í karlmann á svip- stundu. í svefnherberginu Diddi og Anna voru komin uppí. Hún sagðist vera þreytt eftir daginn, bauð góða nótt, slökkti á lampanum og sneri sér til veggjar. Diddi var hins vegar velupplagður og fór að strjúka henni um bakið. Anna sýndi lítil viðbrögð en sagði loks að þetta þýddi ekki neitt. „Ég á nefnilega pantaðan tíma hjá kvensjúkdómalækni á morgun. Farðu nú að sofa.” Diddi lá kyrr um stund, en eftir nokkrar mínútur teygði hann sig yfir Önnu og hvíslaði í eyrað á henni: „Áttu nokkuð pantaðan tima hjá tannlækni á morgun?” Sjómannablaðið Víkingur - 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.