Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Page 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Page 40
Gissur ÁR-6, frystitogari sem smíðaður var á Akranesi 1987. þremur stoðum hefur verið rennt undir og starfsumhverfi okkar er samskonar og keppinauta okkar í nágrannalöndunum er ekki annað sýnna en ýmsir möguleik- ar muni opnast í stálskipasmíðum á ís- landi. Markaður erlendis Þess er áður getið að hin miklu verk- efni, sem niðurgreiðslurnar hafa skapað meðal nágrannalandanna hafa i raun greitt götu íslensks skipaiðnaðar - svo undarlega sem það hljómar. Þetta felst í því að útgerðir minni báta í nágranna- löndunum hafa ekki getað leitað þangað með smíðar vegna þess að allar stöðvar hafa næg verkefni út næsta ár. M.a. þess vegna leituðu Færeyingar og Irar til Ós- eyjar í Hafnarfirði sem hefur smíðað rninni fiskiskip sem reynst hafa mjög vel. Þegar þeir sáu þá báta, sem hér höfðu verið smíðaðir, gæði þeirra og frágang allan, leituðu þeir eftir samningum og kom þá í ljós að verðið fældi þá ekki frá. Samningar voru undirritaðir og í lok þessa mánaðar (mars) verða tveir fyrstu 20 metra bátarnir afhentir og þá hafin smíði næstu tveggja. Auk þess hefur verið gengið frá þremur samningum við íra um svipuð skip og enn fleiri samn- ingar í sjónmáli. Markaður fyrir þessa stærð af skipum virðist því vera mjög álitlegur og bendir margt til að fleiri skipasmiðjur hér á landi taki þátt í þessari nýju útrás. Svo virðist sem við höfum fundið á- kveðna þörf á markaðnum sem álitlegt er að sinna. Því er stefnt að því að íslenskur skipaiðnaður verði í fremstu röð í hönn- un og smíði minni fiskiskipa þar sem gerðar eru miklar kröfur til vandaðra vinnubragða og góð skip. Áfram veginn Margt bendir til að þegar okkur hefur tekist að ryðja úr vegi síðustu hindrun- unum og skapa jafna samkeppnisstöðu þá eigum við íslendingar að geta haslað okkur álitlegan völl á alþjóðavettvangi við smíði 20 til 40 metra fiskiskipa. Þetta hafa Finnar gert í smíði lystiskipa og atburðir síðustu mánaða benda til að íslendingum ætti að takast það sama þegar minni fiskiskip eiga í hlut. Friðrík Sigurðsson ÁR-17, dragnótabátur sem var smíðaður í Garðabœ 1969 Ljósmyndir af skipunum: Jón Páll Ásgeirsson 40 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.