Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Síða 57

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2002, Síða 57
var rætt er um að sókn 1 ókynþroska hluta stofnsins hefði farið vaxandi og að sókn í eldri árganga hefði meira en tvö- faldast á 20 ára tímabili, án þess að afl- inn hefði aukist. í skýrslunni segir (Haf- rannsóknastofnunin 1975, bls. 2): „Talið er að hámarksafrakstur þorsk- stofnsins sé nær 500 þúsund tonn á ári. Til þess að ná þeim afla þarf að fullnægja eftirfarandi skilyrðum: * Að minnka núverandi heildarsóknar- þunga í þorskinn uin helming * Að koma í veg fyrir veiði smáfisks, þriggja ára og yngri og draga verulega úr veiðum á fjögurra ára fiski” Leiðir sem lagt var til að farnar yrðu að þessum markmiðum voru m.a. að fylgj- ast með útbreiðslu smáfiska og hlutfalli þeirra í afla og beita skyndilokunum í allt að 10 daga þegar svo bæri undir, auka lágmarksstærð þess þorsks sem uiátti hirða úr 43 í 50 cm, stækka tnöskva í poka, sem var 135 mm, og fast- setja aflamark fyrir hvert ár. Síðar er far- ið að tala um að geyma fisk i sjónum til að jafna sveiflur i veiði og þau rök heyrð- Ust æ oftar eftir því sem aukin áhersla er lögð á hagkvæmni veiða í umræðunni í samfélaginu, og voru kveikjan að miklu úefndarstarfi sem unnið var á árunum 1992-4 og Hafrannsóknastofnunin tók yirkan þátt í (Vinnuhópur urn nytingu fiskistofna 1994). Á þessum tíma var nokkuð af þorski á úppeldisslóð við Grænland, þorski sem síðar gekk til hrygningar við ísland, og það var vitanlega ein af forsendum þess- arar afrakstursspár. Það sem ég vil vekja athygli á hér eru leiðirnar sem átti að fara; þær eru í öllum meginatriðum þær sömu og nefndar eru enn í dag, og mikið af gagnrýninni hefur einmitt beinst að þeim. Aðferðafræði og vinnulag Frá 1972 er farið að meta stofninn með aldurs-afla greiningu. í þessu efni fylgd- örn við fordæmum annarra þjóða. Rothschild (1986) og síðar Beverton (1992) hafa bent á að með tilkomu og þróun tölva hafi reiknigeta aukist rnikið Súemma á áttunda áratugnum. Fram að þeim var lögð áhersla á að rannsaka grundvallarforsendur og samspil ýmissa lílfræðilegra þátta, svo sem vaxtar og kýnþroska, til að stytta sér leiðir í út- reikningum á afrakstursgetu fiskstofna. kegar reiknigetan varð ekki eins tak- ^úarkandi þáttur beindist athyglin meir að því að safna auknum gögnurn úr fönduðunt afla til að bæta stofnstærðar- ^úatið og áætla stofnþróun. Hafrannsóknastofnunin er hér engin uúdantekning og þar þróaðist mjög um- fangmikið og öflugt sýnasöfnunarkerfi - Sennilega það besta í heimi af jafn um- ^úgsmiklum veiðum. Kerfið byggir á Huginn VE á loðnuveiðum. því að sýnasöfnunin er skipulögð með hliðsjón af nýjustu upplýsingum um landanir á mismunandi stöðum á land- inu og afla í mismunandi veiðarfæri. Þannig er reynt að tryggja að sýnin end- urspegli veiðarnar sem best. 1 dag er safnað sýnum til aldursgreininga úr urn 180 þús. fiskum á ári, þar af um 30 þús. úr þorski, og um 1.2 millj. fiska eru lengdarmældir, þar af um 440 þús. þorskar (Hafrannsóknastofnunin 2001a). Þetta er umfangsmikil söfnun sýna, svo ekki sé fastar að orði kveðið, sem hlýtur að bitna á möguleikum stofnunarinnar til að stunda aðrar rannsóknir, t.d. kannanir á grundvallarforsendum reiknilíkansins. í grein sem Kristján Þórarinsson skrifaði 1992 bendir hann á hve mikilvægt það sé að forsendur reiknilikansins sem notað sé við stofnamatið séu réttar og segir svo (bls. 3): „..flestar mælingar eru gerðar til að þjóna likan- inu en minna er um mælingar sem beinast að þvi að leiða í ljós veruleg frávik frá likaninu, ef um slíkt væri að ræða.” Aldurs-afla greiningin styðst einnig við tölur um afla á sóknareiningu frá mis- munandi hlutum ílotans og kannanir á útbreiðslu, þéttleika og vexti sem gerðar eru í kerfisbundnum vöktunarleiðöngr- um, s.k „röllum”. Þar ber hæst stofn- mælingu botnfiska að vorlagi eða togar- arallið sem haldið hefur verið úti frá 1985 í náinni samvinnu við hagsmuna- aðila. Mat á stofnstærðum nytjastofna og ráðgjöf varðandi nýtingu þeirra eru lang umfangsmestu og kostnaðarsömustu verkefni Hafrannsóknastofnunarinnar, en niðurstöður þeirra hafa birst reglulega í svokölluðum ástandsskýrslum allt írá ár- inu 1978. Samhliða þesssari vinnu eru (Ljósmyndir. Jón Páll Ásgeirsson) stundaðar öflugar umhverfisrannsóknir auk þess sem unnið hefur verið að rnarg- víslegum öðrum rannsóknum, svo sem samspili stofna (fjölstofnarannsóknir) og hrygningarrannsóknum þar sem metinn er uppruni, dreifing og lífslikur seiða m.t.t. stærðar og útbreiðslu hrygningar- stofns eða -stofna, og umhverfisað- stæðna. Þrátt fyrir að aflað hafi verið mikillar þekkingar með þessum rann- sóknum og þær leitt til aukins skilnings, þá virðast þær enn hafa skilað sér tiltölu- lega takmarkað inn í stofnmatsvinnuna eða veiðiráðgjöfina, ef frá er talið samspil þorsks, loðnu og rækju. í þessu tilliti er líkt á með okkur kornið og Norðmönn- um. Þegar ráðgjöf um þorskveiðar í Barentshafi brást illa í lok níunda áratug- arins var lagt upp í fjölstofnarannsóknir sem áttu að korna í veg fyrir að slíkt end- urtæki sig. Þessar rannsóknir virðast þó lítið hafa skilað sér með áþreifanlegum hætti inn í mat á framvindu nytjastofna og því ekki bætt veiðiráðgjöfina að því marki sem til stóð (Kolding 1989, 1996). Forsendur Hafrannsóknastofnun- arinnar og helstu rök gagn- rýnenda Gagnrýnin hvað þorskinn varðar snýst að mínu mati urn fjóra meginþætti: * Mat á náttúrulegum afföllum * Áhrif stærðar hrygningarstofns á við- komu * Áhrif stofngerðar (stærðarsamsetning- ar) á framleiðslu * Hvort um sé að ræða fleiri en einn stofn Hér verður fjallað nánar um þessi at- riði, þar sem leitast verður við að gera grein fyrir þeirn forsendum sem Hafrann- Sjómannablaðið Víkingur - 57

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.