Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 13
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
7
af brautunum, sem þá mynduðust. Á einni ljósmyndinni sást braut,
sem leit út eins og braut elektrónu, en beygði í öfuga átt við það,
sem negatív elektróna mundi hafa gert. Til þess að vera viss í
sinni sök setti Anderson 6 mm þykka blýplötu í mitt hylkið og tók
svo myndir að nýju. Ögnin missti nokkuð af orku sinni við að fara
gegnum blýplötuna. Beygjan á brautinni fyrir ofan plötuna var
meiri en fyrir neðan hana, og hlaut ögnin því að hafa komið inn
að neðan (sjá 6. mynd). Frá þekktri stefnu segulsviðsins og beygju
brautarinnar var sú ályktun dregin, að ögnin hlyti að hafa pósitíva
ltleðslu. Ögnin er kölluð andelektróna eða pósitróna. Mælingar
sýna, að hún hefur sama massa og sarna snúningsskriðþungamætti
' N
7. mynd. Pósitróna hefur sama massa og sama snúnings-
skriðþungamætú og elektróna. Hún hefur jafnstóra raf-
hleðslu og elektrónan, en hleðsla pósitrónunnar er pósi-
tív. Segulmætti pósitrónunnar er jafnt segulmætti elek-
trónunnar, en hefur annað formerki, jj. e. a. s. norður
og suður segulpólarnir snúast við. Berið þessa mynd sam-
an við 4. mynd.
og elektróna. Einnig hefur hún sömu ldeðslu og sama segulmætti,
en með öfugu formerki (sjá 7. mynd og berið hana saman við 4.
mynd).
Anderson hlaut Nóbelsverðlaun í eðlisfræði árið 1936 fyrir
uppgötvun sína á pósitrónunni.
Hvað gerist, þegar pósitróna rekst á elektrónu?
Pósitrónan er svokölluð andögn elektrónunnar. Þegar pósitróna
fer gegnum efni, missir hún orku við árekstra. Þegar hraði hennar
er orðinn nærri því núll, gengur hún í samband við elektrónu, þær
eyða hvor annarri og orka, sem samsvarar massa beggja agnanna
myndast, venjulega sem tvær gammageisla fótónur.1) Hin fræga
líking Einsteins segir, að orka hvorrar fótónu fyrir sig verði mec2,2)
þar sem me er massi elektrónunnar og c er ljóshraðinn. Þegar massi
elektrónunnar og ljóshraðinn eru sett inn í þetta stærðtákn, kemur
1) Gammageislar eru rafsegulöldur, svipaðir Röntgen geislum, en hafa enn
jiá styttri öldulengd (eru orkumeiri). Fótóna er skammtur af geislaorku.
2) Ef me er í grömmum og c í cm/sek, kemur orkan út í ergum.