Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1961, Blaðsíða 15

Náttúrufræðingurinn - 1961, Blaðsíða 15
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 9 9. mynd. Bevatróninn við Kaliforníuháskóla gefur pró- tónum orkuna 6200 milljón elektrónvolt. Á þessari teikn- ingu sést bygging hans í höf- uðdráttum. Aðalhlutar tækis- ins eru 120 metra langt hringlaga málmrör, sem loft- inu hefur verið dælt úr, og 10000 tonna þungur hring- laga segull, sem skipt er í fjóra jafna hluta. Málmrör- inu er komið fyrir milli póla segulsins. Prótónunum er skotið inn í bevatróninn með tveim flýtum (accelera- tors), sem sýndir eru efst á teikningunni. Síðan þjóta þær hvern hringinn af öðr- um í tækinu og öðlast sí- fellt meiri og meiri hraða, unz þær hafa orkuna 6200 milljón elektrónvolt. Þá eru þær látnar rekast á koparplötu, sem sýnd er með breiðri línu neðst til liægri á teikningunni. á prótónu. E£ prótóna og andprótóna myndast við það, verða fjórar agnir til staðar eftir áreksturinn; tvær upprunalegu prótónurnar svo og hin nýskapaða prótóna og andprótóna. Hver þessara agna um sig hefur hreyfiorku, sem nemur um það bil 1000 milljónum elektrónvolta. Til þess að skapa andprótónu (og prótónu) með þess- um hætti þarf því 2000 milljón elektrónvolt (orka, sem samsvarar massa prótónu og andprótónu) -(- 4000 milljón elektrónvolt (hreyfi- orka hinna fjögurra agna) eða alls um það bil 6000 milljón elek- trónvolt. Árið 1954 var tekinn í notkun við Kaliforníuháskólann í Berkeley risavaxinn 6200 milljón elektrónvolta prótónu flýtir (proton acce- lerator), sem ber nafnið bevatrón1) (sjá 9. og 10. mynd). Þetta var 1) Bandaríkjamenn kalla 1000 milljónir (100) eina billjón (hér á landi er ein billjón milljón milljónir eða 1012). Orka prótónanna í bevatróninum í Berkeley var því 6,2 (bandarísk) billjón elektrónvolt (skammstafað 6,2 Bev). Er nafnið á tækinu dregið af því.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.