Náttúrufræðingurinn - 1961, Blaðsíða 36
30
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
I //rr?sm
Calypogeia fissa (L.) Raddi og C. trichoman.is (L.) Gorda ap Opiz, séðar að
neðan. (Rætlingar ekki teiknaðir).
arra 104 tegunda í bók sinni „Kleine Kryptogamenflora. Band IV“
(1957), og virðist ekki í neinum vafa um tegundarrétt Scapania
dentata. Hér á eftir mun ég svo geta tveggja tegunda, sem mér er
ekki kunnugt um að liafi fundizt hér áður, og er þá tegundafjöld-
inn kominn upp í 106, og er það sú tala, sem ég hef komizt næst
að unnt mundi vera að halda sig við fyrst um sinn.
Ég vil nú geta nýrra fundarstaða nokkurra, væntanlega mjög
sjaldgæfra, lifrarmosa, en aðeins þeirra tegunda, sem ekki er getið
frá fleiri en 3 stöðum á landinu í ritgerð Hesselbos.
1. Calypogeia fissa (L.) Raddi.
Fundin í Hafnarfjarðarhrauni í apríl 1960. Hún óx þar í skugg-
sælli gjé>tu í graslendi innan um Cephalozia bicuspidata, hulin af
blaðmosum og grasi. Mér er ekki kunnugt um, að þessi tegund hafi
fundizt áður hérlendis. Hér hefur á nokkrum stöðum fundizt önn-