Náttúrufræðingurinn - 1961, Blaðsíða 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
31
ur tegund af þessari ættkvísl, Calypogeia trichomanis (L.) Corcla
ap Opiz. C. fissa er einkum frábrugðin C. trichomanis í því, að
blöð hennar eru dálítið öðruvísi löguð og eru sýld í oddinn, en
blöð C. trichomanis eru lieil og bogadregin að framan. Þá eru
undirblöð C. fissa dýpra klofin og með tönn eða öxl oftast á báð-
um hliðum, en undirblöð C. trichomanis oftast axlarlaus.
C. fissa vex erlendis m. a. í Suður- og Vestur-Noregi, suðurhluta
Svíþjóðar, Álandseyjum, Borgundarhólmi, Bretlandseyjum og
Austur- og Mið-Evrópu. Á Norðurlöndum er hún miklum mun
algengari en C. trichomanis, sem hér vex eingöngu í jarðhita, að
sögn Hesselbos.
2. Barbilophozia hatcheri (Evans) Loeske.
Hafnarfjörður, apríl 1959. Eins og fyrr segir er þessarrar tegundar
getið úr Flóanum í Árnessýslu í áðurnefndri ritgerð Steindórs Stein-
dórssonar sem nýrrar tegundar á íslandi, því Hesselbo nefnir hana
ekki. Ekki þarf þó að vera, að tegundin sé svo mjög sjaldgæf hér-
lendis, því verið getur, að henni hafi verið ruglað saman við hina
algengu B. lycopodioides, enda er munurinn ekki mikill, en ekkert
verður þó fullyrt um það að sinni, livort svo er í raun og veru.
3. Saccobasis polita (Nees) Buch.
Möðruvellir í Hörgárdal, ágúst 1959 (Hörður Kristinsson). Hes-
selbo fann þessa tegund á einurn stað á landinu, ísafirði. Ekki
fundust úr Hörgárdalnum nema örfá eintök innan urn aðra mosa.
4. Lophocolea minor Nees.
Fundin nálægt Víf'ilsstöðum í maí 1959. Hesselbo getur hennar
frá 3 stöðum: Hálsskógur N. (Ól. Dav.), Reykjadalur S. og Vest-
mannaeyjar.
5. Lophocolea cuspidata (Nees) Limpr.
Bakkakot undir Eyjafjöllum í Rangárvallasýslu, sept. 1959 (Steinn
V. Magnússon) og Örfirisey, júní 1960 (Dóra Guðjohnsen). Tveir
fundarstaðir eru hjá Hesselbo: Vestmannaeyjar og Holt S.
6. Chilocyphus pallenscens (Ehrli.) Dum.
Hesselbo segir í sinni ritgerð, að þessarrar tegundar hafi verið