Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 14

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 14
8 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN í ljós, að orka hvorrar fótónu fyrir sig verður 0,511 milljón elek- trónvolt1) (skammstafað 0,511 Mev). Það hefur einnig komið í Ijós, að orka getur breytzt í efni. Fótóna, sem hefur meiri orku en 2mec2 (meiri orku en 1,022 Mev), getur í sterku rafsviði, t. d. nálægt atómkjarna, breytzt í elektrónu og pósitrónu. Andprótónan kemur til sögunnar. Kenning Diracs um elektrónuna ætti með smávægilegum breyt- ingum einnig að gilda fyrir prótónuna. Segir kenningin svo fyrir um, að til eigi að vera bæði pósitívar og negatívar prótónur. Pró- 8. mynd. Prótóna til vinstri og andprótóna til hægri. tóna með negatíva hleðslu er kölluð andprótóna. Andprótónan ætti að hafa sama massa og snúningsskriðþungamætti og prótónan, en hleðslan og segulmættið ætti að hafa annað formerki (sjá 8. mynd). Strax eftir, að Dirac kom fram með kenningu sína, fóru menn að svipast um eftir andprótónum. Ef prótóna og andprótóna em myndaðar með því að breyta orku í efni, þarf til þess að minnsta kosti þá orku, sem samsvarar massa tveggja prótóna eða 2mpc2, þar sem mp er massi prótónunnar. Orka þessi reiknast vera tæpar 2000 milljónir elektrónvolta. Slíka orku var þá hvergi að finna nema í geimgeislum, og fóru menn því að leita að andprótónum þar. Nokkmm sinnum héldu menn, að þeir hefðu orðið varir við and- prótónur, en aldrei tókst þeim að sanna það örugglega. Á síðari árum hafa verið byggðir æ öflugri kjarnkljúfar, en það eru tæki, sem geta gefið hlöðnum ögnum gífurlega orku. Hugsan- leg leið til þess að mynda prótónu og andprótónu er að skjóta hlað- inni ögn, sem hefur mikla orku, á eitthvert skotmark, t. d. prótónu 1) Elektrónvoh er sú orka, sem elektróna fær við að falla gegnum spennuna eitt volt. Eitt elektrónvolt er 1,60 x 10—12 erg.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.