Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 23

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 23
NÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN 17 við jarðarbúar yrðum hennar varir. Á síðustu áratugum hafa verið uppgötvaðar útvarpsöldur (rafsegulöldur), sem berast utan úr himingeimnum, bæði frá vetrarbraut okkar og öðrum vetrarbraut- um. Ekki hefur enn tekizt að skýra til hlítar orsakir þessara útvarps- aldna. Bent hefur verið á, að hugsanlegt sé, að orka útvarpsaldn- anna myndist við það, að efni og andefni eyðist, ef gert er ráð fyrir, að andefni sé til á annað borð. Það er þó margt, sem mælir gegn því, að andefni geti verið til, og skal í því sambandi drepið á eitt veigamikið atriði. i n 16. mynd. Nevtróna til vinstri, andnevtróna til ltægri. Nú á dögunt virðast tvær kenningar efst á baugi um myndun heimsins1). Önnur kenningin er sú, að í upphafi hafi allt efni heimsins verið samanþjappað í einum geysilega þéttum og heitum kjarna, sem nefndur hefur verið frumatóm eða frumkjarni. Kjarni þessi hafi síðan sprungið, efni hans þanizt út, kólnað og myndað stjörnur og vetrarbrautir, eða með öðrum orðum heiminn, eins og hann er nú. Vitað er, að vetrarbrautirnar fjarlægjast hver aðra, og kemur það vel heim við þá kenningu, að heimurinn hafi orðið til við sprengingu. Samkvæmt hinni kenningunni hefur heimurinn frá öndverðu verið í höfuðdráttum eins og hann er nú og mun alltaf verða eins, þ. e. a. s. breytist raunverulega ekki með tímanum. Þótt vetrar- brautirnar fjarlægist hver aðra, þá verður ekki minna efni í rúminu fyrir það, því að nýjar vetrarbrautir eru sífellt að myndast. Mynd- 1) Þeim, er liaía liug á að afla sér meiri fróðleiks um þessar kenningar, er bent á hina greinargóðu og skemmtilegu grein prófessors Trausta Einarssonar í bókinni: Vfsindi Nútímans.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.