Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2006, Síða 6

Náttúrufræðingurinn - 2006, Síða 6
Náttúrufræðingurinn Gunnólfsvík Lengd hrygna (cm) 9. mynd. Sambandið á milli stærðar hrygna og meðalstærðar hrogna (með staðalfrávikum) hjá þorskhrygttum í Gunnólfsvík vorið 1992. Stærð hrogna hefur áhrif á stærð kviðpokaseiða (r2 = 0,3-0,6; 10. mynd). Kviðpokaseiði sem klekjast úr stórum hrognum eru allt að 40% þyngri en þau sem klekjast úr litl- um hrognum. Tilraunir í eldisstöð Hafrannsóknastofnunarinnar, þar sem fylgst var með hrognum og kviðpokaseiðum frá hrygnum af mismunandi aldri, stærð og ástandi, leiddu í ljós að stærð 10. mynd. Stærð hrogna og stærð lirfa við klak (efri mynd) og við 20 daga aldur (neðri mynd).2 hrogna og kviðpokaseiða við klak hafði áhrif á fæðunám, vöxt og lífslíkur ungviðisins (11.-12. mynd).2-6 Einnig kom í ljós að sá stærðarmunur sem kom fram við klak var enn til staðar þegar lirfurn- ar höfðu náð a.m.k. 20 daga aldri (10. mynd). Fæðunám og vöxtur KVIÐPOKASEIÐA Fyrstu 3-7 dagana eftir klak eru kviðpokaseiðin ósjálfbjarga og lifa eingöngu á forðanæringu kvið- pokans. Það er ekki fyrr en melting- ar- og skynfæri eru farin að þroskast að þau geta innbyrt utan- aðkomandi fæðu. Því er mikilvægt að þau geti hafið fæðunám áður en forðanæringin er uppurin. Oft er 11. mynd. Fæðunám kviðpokaseiða (maga- fylli %) sem klöktust úr hrognum af mis- munandi stærð.6 talað um þetta tímabil sem „the critial period"7 í lífi kviðpokaseið- anna, þ.e. tímann sem þau hafa til að afla sér fyrstu fæðu áður en forðanæringin er gengin til þurrðar. Að þessu leyti virðast kviðpoka- seiði úr stórum hrognum vera betur stödd þar sem þau þroska skyn- og meltingarfærin hraðar og geta því hafið fæðunám fyrr en þau sem klekjast úr smáum hrognum (11. mynd)6 auk þess sem þau þola lengra tímabil án utanaðkomandi fæðu (þ.e. hafa meiri forðanæringu) og því eru lífslíkur þeirra meiri við ótrygg fæðuskilyrði. Kviðpokaseiði sem klekjast úr stórum hrognum 12. mynd. Vöxtur kviðpokaseiða (meðaltal og staðalfrávik) sem klöktust úr hrognum af mismunandi stærð.6 innbyrða fæðu örar en þau sem koma úr smáum hrognum (11. mynd). Þetta kemur einnig glöggt fram í vexti kviðpokaseiðanna þar sem seiði úr stórum hrognum vaxa hraðar fyrstu vikurnar eftir klak (12. mynd). ÞROSKUN SUNDMAGA Eins og fram hefur komið verða miklar breytingar á þroska og útliti kviðpokaseiða fyrstu vikurnar eftir klak. Flestar þessara breytinga tengjast fæðunámi en lífsafkoma kviðpokaseiðanna byggist á því að þau finni fæðu með sem minnstri fyrirhöfn. Þannig verða breytingar á sjón, munnopi og meltingarvegi ásamt því að sundmaginn myndast. Sundmaginn myndast fyrst sem ör- lítil loftbóla undir hryggnum efst í kviðarholinu (13. mynd). Tilkoma sundmagans er ákaflega mikilvæg 13. mynd. Tíu daga gömul kviðpokaseiði. Rauða örin bendir á sundmagann þar sem hann liggur undir fremri hluta hryggjar- ins. Ljósm. Guðrún Marteinsdóttir. 6 J

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.