Náttúrufræðingurinn - 2006, Qupperneq 21
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
vel með tönnum, sléttar eða vört-
óttar. Sumar tegundir er erfitt að
greina frá nýradjásni. 11 tegundir
eru skráðar hér á landi, líklega allar
nokkuð tíðar, t.d. E. ansatum, E.
didelta og E. oblongum.
Micrasterias (1. mynd).
(gr. micros = smár; gr. astron =
stjama). Skjalddjásn
Skjalddjásn em flatvaxin, skjaldar-
laga eða sexhymd í flatarsýn, en
mjósporöskjulaga frá hlið, með
djúpum miðskorum. Auk þess er
hvor hálffruma með a.m.k. tveimur
djúpum skorum á hvorri hlið og
millistykkin oft hvassydd. Skjald-
djásnin eru skrautlegust allra djásn-
þörunga, minna oft á heiðursmerki
(stjömur). Þau eru líka tiltölulega
stór, sumar tegundir geta náð allt að
0,5 mm þvermáli. Þessi glæsilega
ættkvísl fannst ekki hér á landi fyrr
en 1970.18 Aðeins fjórar tegundir eru
skráðar: M. papillifera og M. sol eru
nokkuð öruggar en M. denticulata og
M. thomasiana eru vafasamar.
Pleurotaenium (8. mynd).
(gr. pleura = síða, rif; gr. tainia =
band, borði). Staurdjásn
Frumur langar, mjóar og beinar og
líkjast staur. Miðskoran grunn og oft
er dálítil þykknun báðu megin við
hana. Endamir þverstýfðir og með
vörtum. Sumar tegundir eru hnúsk-
óttar. Geta orðið allt að 1 mm á
lengd. Tvær tegundir þekktar hér: P.
ehrenbergi og P. trabecula, báðar
algengar í tjörnum og mógröfum.
Staurastrum (4. og 9. mynd).
(gr. stauros = kross; gr. astron =
stjama). Stjömudjásn
Tegundir þessarar ættkvíslar eru
afar breytilegar í lögun svo varla er
hægt að lýsa þeim sem heild. Helsta
einkennið er að miðskoran er opin
og víð, og hálffrumur hafa vanalega
tvo eða fleiri áberandi brodda eða
hom, sem oft enda í göddum. Séð í
endann er fruman oft þríhymd. í
heildarsýn líkjast þessir þörungar
oft stjömum.
Þetta er álíka stór ættkvísl og
Cosmarium; með mörg hundruð
tegundum. Um 30 em skráðar hér-
6. mynd. Djásnþörungar 111: 1 Tetmemorus granulatus, 2 Euastrum ansatum, 3 E.
didelta, 4 E. oblongum, 5 E. binale, 6 E. denticulatum, 7 E. elegans, 8 E.
bidentatum, 9 E. verrucosum. (7 er ófundin á íslandi).9
7. mynd. Barðdjásn (Euastrum). Úr H.C. Lund og J.W.G. Lund: Freshwater Algae,
1995.
21