Náttúrufræðingurinn - 2006, Síða 53
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
3. mynd. Hluti af mderingu, sem gerð var eftir íslandskorti Guðbrands Þorlákssonar
biskups, en það var upprunalega teiknað fyrir 1585. Þar sést hafís og ísbirnir við
Langanes. í skýringum aftan á kortinu við stafinn Q er frá því sagt að mikið af hafís
berist upp að landinu frá hinu frosna úthafi. Sagt er að hreyfing jakanna valdi miklum
hávaða og sutns staðar séu þeir þéttsetnir ísbjörnum að leik. - Part ofa map of Iceland,
a copy from a map drawn by Bishop Guðbrandur Þorláksson before 1585. It shoivs sea
ice and polar bears off Langanes. In explanations under Q on the back of the map it is
stated that great quantities ofsea ice are carried by currents frotn the ice-covered ocean
to the coast oflceland, and some ofthefloes are packed with polar bears at play.
þegar ísinn myndast og fjarlægðinni
frá ísyfirborðinu. Meðalseltumagn
hafíssins austan við Grænland er
talið vera nálægt 5%o. Að sjálfsögðu
er það frumskilyrði hafísmyndunar
að hitastigið fari niður fyrir frost-
mark sjávarins, en uppleyst sölt
hans valda frostmarkslækkun. Selta
í fullsöltum sjó er kringum 35 %o og
frostmarkið er þá um -1,9°C. Auð-
veldast á hafís með að myndast þar
sem sjórinn er verulega lagskiptur,
þannig að ofan á saltari og þyngri
djúpsjó er seltulítið yfirborðslag. Sé
mismunurinn í eðlisþyngdinni
nægjanlega mikill, verður lítil sem
engin blöndun við neðri lög sjávar-
ins, þrátt fyrir kælingu yfirborðs-
lagsins niður í frostmark. Þannig
getur myndast lagnaðarís þótt hlýr
sjór sé nokkra metra undir yfirborði.
Augljóst er því að lagskipting sjávar-
ins er ekki síður mikilvæg fyrir
hafísmyndun en hitastigið.
Þessi lagskipting sjávarins, sem
veldur því að þrátt fyrir yfirborðs-
kælingu sjávar sem myndað hefur
lagnaðarís er hlýr sjór aðeins nokkra
metra undir yfirborði, hefur reynst
mikilvæg til að fjarlægja ís á
takmörkuðum svæðum með loftból-
um. Þessi aðferð hefur verið notuð
þegar hindra þarf ísmyndun eða
bræða ís á yfirborði sjávar vegna
siglinga eða mannvirkjagerðar. Að-
ferðin felst í því að áður en ís hefur
myndast á haffletinum eru lagðar
margar samhliða plastslöngur ná-
lægt sjávar- eða vatnsbotninum á
því svæði sem halda skal íslausu.
Með nokkurra metra millibili eru
boruð mjó göt á þessar plastslöngur.
Þegar hætta er á að lagnaðarís fari
að myndast, eða jafnvel eftir að ís
hefur myndast á vatninu, er þrýsti-
lofti dælt inn í slöngumar. Þá stíga
loftbólur upp undir ísflötinn.
Reynsla hefur sýnt að allt að 50 cm
þykkur ís hefur bráðnað af svæðinu
eftir örfáa daga. Ástæðan er sú að
loftbólurnar koma hreyfingu á vatn í
heitari vatnslögum nokkra metra
undir yfirborðinu og þetta vatn
bræðir ísirtn. Orkan sem bræðir ísinn
kemur þannig úr neðri lögum
vatnsins en að sáralitlu leyti úr þeirri
orku sem fer í að knýja loftþjöppuna.
Á norðurheimskautssvæðinu er
feikikuldi, en þó minni en margir
halda. Frost verður þar sárasjaldan
meira en -47°C., en á suðurheim-
skautinu hefur frost mælst -74°C.
Norðurheimskautið og nálæg haf-
svæði eru eilíflega þakin því nær
samfelldum hafís, sem er margra ára
gamall. Ef rakin er saga einstaks
hafísjaka, hefst myndun hans að
hausti með því að frostskel myndast
á yfirborði sjávarins. ísrnn þykknar á
einum vetri og er orðirtn 2 hl 3
metrar að þykkt næsta vor. Hraðast
leitar saltlögurinn að sumri niður úr
jakanum eftir pækilrásum, eins og
sagt var frá að framan (sjá 5. mynd).
Að hausti er jakinn orðinn seltulítill
íshafsís. Töluverð sólbráð verður á
yfirborði íssins, yfirborðið verður
óslétt og tjarnir myndast á honum.
Sólvarminn hitar tjamimar meira en
Talið er að um 55 ísbirnir hafi alls borist til íslands með hafís og verið felldir.
Eftir að farið var að skrá komu ísbjarna til landsins hefur þeirra flestra orðið
vart á Hornströndum og þar hafa 20 birnir verið felldir. Árið 1988 kom
ísbjörn af hafísjaka í land í Haganesvík og árið 1993 sást ísbjörn á sundi við
Vestfirði. Báðir voru þeir felldir.
53