Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 71
5. mynd. Álkan er ein þeirra fuglategunda sem íslendingar bera sérstaka ábyrgð á, enda
verpur mikill meirihluti allra álkna f heiminum hér við land. Stœrsta einstaka álkubyggð-
in er íStórurð undir Látrabjargi, þar sem þessi mynd er tekin. Þarna verpa álkurnar ásamt
langvíum. Afleiðingarnar jyrir heimsstofn álkna gœtu orðið ógnvcenlegar ef meit iháttar
slys yrði við Látrabjarg. - The Razorbill is one ofthe bird speciesfor which Iceland has a
special responsibility, since the great majority of the world population nests in this coun-
try. By far the largest single breeding group of Razorbills is found here at the Stóriuð
boulder scree below the huge seabird cliff of Latrabjarg, northwest Iceland, where they
nest in close proximity to Common Guillemots. Ljósm./photo: Ævar Petersen, 24.7.1993.
■ HVAÐ ER TIL RÁÐA í
VÖKTUNARMÁLUM?
Mat á stofnstærð eða þekking á stærð vissra
sjófuglabyggða er ákveðinn grunnur að
vöktun. Þótt áhugavert sé að öðlast
nákvæma vitneskju um heildarstærð stofna
er jafnvel enn mikilvægara að fylgjast með
framvindu þeirra. Innan CAFF-samstarfsins
hefur vöktun verið tilgreind sem eitt helsta
áhersluatriði í verndun lífríkis á norður-
slóðum. Vemdaráætlanir fyrir svartfugla
(CAFF 1996) og æðarfugla (CAFF 1997)
hafa þegar verið samþykktar af umhverfis-
ráðherrum landanna. Þar er vöktun eitt
margra viðfangsefna sem fjallað er um til
verndar viðkomandi tegundum. Nú er unnið
að frekari tillögum hvemig takast megi á við
þessi verkefni m.a. í tengslum við hnatt-
rænar loftslagsbreytingar. Verði þessum
áætlunum hmndið í framkvæmd verða þær
mikilvægt framlag til vöktunar á sjófugla-
stofnumáíslandi.
Til að koma á samhæfðri áætlun um
vöktun íslenskra sjófuglastofna þarf að
setja fram sértæka áætlun fyrir hverja
tegund, enda eru lifnaðarhættir tegundanna
mismunandi og breytilegt hvaða aðferðum
er hægt að beita við vöktun þeirra. í sumum
tilvikum er mögulegt að vakta allan stofninn
og má segja að það sé æskilegast og
ömggast. Fuglastofnarnir em samt flestir
svo stórir og dreifðir að velja þarf hluta
þeirra til vöktunar. Við það val þarf að huga
197