Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 4

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 4
Varðveisla ERFÐALINDA síðustu árum hefur skilningur aukist á gildi þess að varðveita erfðalindir fyrir komandi kyn- slóðir. Endurspeglast hann í samningnum um líffræðilega fjölbreytni og framkvæmdaáætlun hans, Dagskrá 21, sem hvort tveggja var samþykkt í Rio de Janeiro 1992. Þar er m.a. lögð áhersla á að vernda líffræðilega fjölbreytni sem jafnframt tryggir erfðabreylileika og sjálfbæra nýtingu lifandi náttúruauðlinda. Þá var rnörkuð sá stefna að erfðalindir séu þjóðarauðlind og að forsjá þeirra skuli falin þjóðríkjum. Islendingar eru fullgildir aðilar að Ríósamkomulaginu og hafa tekið á sig ábyrgð á að koma af stað og fylgja eftir aðgerðum sem stuðla að vernd og sjálfbærri nýtingu erfðalinda. Segja má að Ríósamkomulagið skírskoti bæði til vemdarálíffræðilegri ijölbreytni íhinni villtu náttúm landsins og ekki síður hvemig haga beri vemdun og hagnýtingu erfðalinda í landbúnaði. Hér á landi nýtum við innlendar erfðalindir í sauðfjárrækt, hrossarækt og nautgriparækt þar sem byggt er á gömlum landnámskynjum. Einnig er hér til gamalt geitakyn sem menn hafa lagt sig frain um að varðveita. Ekki hefur verið leyfður innflutn- ingur á erlendum kynjum þessara tegunda nema í rnjög takmörkuðum mæli. Verði af inn- flutningi norskra kúa, eins og nú er útlit fyrir, er brýn nauðsyn að tryggja varðveislu gamla kúakynsins. Einnig hafa heyrst þær áhyggju- raddir að aukið fiskeldi við Islandsstrendur geti útrýmt villtum laxastofnum hér við land. Islendingar verða að vera reiðubúnir að axla þá ábyrgð er felst í Ríósamkomulaginu og tryggja að innflutningurerfðaefnis leiði ekki til þess að hinu innlenda verði útrýmt. Raunar er slíkur farvegur fyrir hendi innan erfðanefndar búfjár sem nú starfar samkvæmt búnaðarlögum. Nefndinni er ætlað að fylgjast með og halda skrá um erfðabreytileika og þróun hans í búljárstofnum og ferskvatnsfiskum og gera tillögur til landbúnaðanúðherra um verndun tegunda og stofna í útrýmingarhættu. Ohætt er að fullyrða að íslenskur land- búnaður hafi byggst eingöngu á nýtingu innlendra nytjaplantna allt fram á þessa öld. Með aukinni ræktun lands þurfti hins vegar að grípa til innfiuttra nytjaplantna. Er staðan í stórum dráttum þannig enn þann dag í dag. Þrátt fyrir kynbætur á innlendum nytjajurtum fullnægja þær að litlu leyti þörfum ræktenda. Þó má tclja víst að í íslenskum plöntum leynist ýmsir eftirsóknarverðir eiginleikar sem hag- nýta má með ýmsum hætti. Auk eiginlegra nytjaplantna má t.d. nefna að margar plöntur búa yfir lækningamætti og má nýta þær við framleiðslu á náttúrulyíjum ýmiss konar. Eðlilegt er að spurt sé hvort hætta sé á að innfluttar nytjaplöntur geti valdið usla í náttúrulegum vistkerfum. Svarið fer m.a. eftir því við hvaða aðstæður þær eru ræktaðar. Hættan er hverfandi ef um er að ræða plöntur sem þrífast aðeins í ræktuðu landi. A hinn bóginn er rétt að vera á varðbergi þegar plantað er eða sáð utan eiginlegs ræktarlands. Umhverfisráðuneytið hefur nú gefið út reglugerð, með stoð í nýlegum lögum um náttúruvernd, sem tekur einmitt á þessurn þætti. Er hún sett með skírskotun í Ríó- sáttmálann og er meginmarkmið hennar að koma í veg fyrir að útlendar plöntutegundir valdi óæskilegum breytingum á líffræðilegri fjölbreytni í íslenskum vistkerfum. Með reglu- gerðinni er vonast til að sátt megi nást um nýtingu innfluttra plantna þar sem það á við. Aslaug Helgadóttir Rannsóknastofnun landbúnaðarins 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.