Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 11
DÝPI
(m) 0
200
400
600
800
1000
5. mynd. Einfölduð mynd sem sýnir dreifingu rauðátu með dýpi á mismunandi árstímum.
kemur með því að synda eða „dansa“ um-
hverfis þau á sérstakan hátt til þess að
vekja athygli þeirra (Tsuda og Miller
1998). Sjálf mökunin er svo fólgin í því að
karldýr grípur kvendýr (sennilega með
kjálkafótunum) og festir sérstakan sæðis-
sekk, sem geyrnir sáðfrumurnar, nálægt
kynopi kvendýrsins með öðrurn aftasta
fætinum. Sæðisfrumurnar færast því næst
úr sæðissekknum um kynop kvendýrsins
inn í sæðisgeymslurnar þar sem þær
varðveitast uns sjálf hrygningin á sér
stað. Að rnökun lokinni drepast karldýrin,
enda er þætti þeirra í viðhaldi tegundar-
innar þar með lokið.
Egg rauðátunnar eru ekki fullþroskuð
þegar mökun fer frarn og því líður nokkur
tími frá mökun og þar til hún hrygnir.
Þroskunartími eggjanna ræðst nt.a. af
fæðuframboði. Ef lítið er af fæðu í sjónum
tekur þroskun eggjanna um mánuð, en sé
hún nægileg þroskast eggin á aðeins fá-
einum dögum (Marshall og Oit 1972). Eggin
frjóvgast svo með sæðisfrumunt úr sæðis-
geymslunum urn leið og hrygning fer fram.
Talið er að rauðátan hrygni aðallega að
næturlagi nálægt yfirborði sjávar (Marshall
og Orr 1972, Melle og Skjoldal 1989).
Hrygningin tekur 1-2 mánuði og koma
eggin, sern venjulega eru 200-600 hjá
hverju kvendýri, í nokkrum lotum með
nokkurra daga hléum á rnilli (Hirche
1996b). Að aflokinni hrygningu drepast
kvendýrin. Hrygningin er nátengd vexti
svifþörunga í sjónum. Stundum byrjar
lítilsháttar hrygning rétt áður en vöxtur
svifþörunganna hefst, en meginhrygn-
ingin fer þó saman við þann tíma þegar
þörungavöxturinn er mestur á vorin.
Þannig reynir rauðátan að tryggja að
fæðuskilyrði fyrir lirfurnar séu með besta
móti á rneðan þær eru að vaxa upp. Yfirleitt
errauðátan komin upp í yfirborðslögin og
tilbúin til að hrygna í aprfl-maí, eða um líkt
leyti og vorvöxtur plöntusvifsins er að
hefjast.
Egg rauðátunnar eru örsrná (um 150 pm)
og þyngri en sjórinn, og því byrja þau að
sökkva strax og þau eru komin út í sjóinn.
Þau ná samt ekki að sökkva mjög djúpt,
9