Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 18

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 18
■ SAMSPIL RAUÐÁTU OG HRYGNINGAR NYTJAFISKA Flestir nytjafiskar hefja líf sitt sem svif í efstu lögum sjávar. Á meðan lirfur og seiði fisk- anna rekur í efri sjávarlögum eru þau að mestu leyti háð dýrasvifinu um fæðu. Á Is- landsmiðum éta yngstu fisklirfurnar aðai- lega egg og smæstu lirfustig rauðátu og annarra krabbaflóa, en þær eldri éta hins vegar stærri rauðátu og önnur stærri svifdýr (Konráð Þórisson 1989, Konráð Þórisson og Þór Ásgeirsson 1999). Til þess að fisk- lirfurnar fái nóg æti þarf því stærð eða þroski fæðudýranna að vera hæfilegur, auk þess sem magn þeirra skiptir auðvitað líka máli. Ef vorhrygning rauðátunnar verður of snemma eða of seint miðað við klak fiskanna, eða þá að hrygningarsvæði rauðátunnar skarast ekki við útbreiðslusvæði fisklirfanna, er hætta á ætisskorti hjá fisklirfunum (9. mynd). Hrygningartími flestra fisktegunda virðist miðast við að fyrsta fæðunám þeirra beri nokkurn veginn upp á hrygningartíma rauðátunnar. Þannig er hrygning loðnunnar yfirleitt í hámarki við suðurströndina í mars (Hjálmar Vilhjálmsson 1994). Loðnuklakið tekur tvær til þrjár vikur og lirfurnar byrja mjög fljótlega að afla sér fæðu, þ.e. að líkindum aðallega í apríl eða um svipað leyti og vorhrygning rauðátunnar er að hefjast. Þorskur og ýsa hrygna hins vegar seinna, í apríl og maí (Karl Gunnarsson o.fl. 1998), og má því gera ráð fyrir að fyrsta fæðunám þorsk- og ýsulirfanna verði aðallega í maí, en eins og getið var um hér að framan er hrygning rauðátu enn mikil á þeim tíma. 1 stórum dráttum virðist þannig fyrsta fæðunám fisklirfanna bera upp á svipaðan tíma og vorhrygningu rauðátunnar. Hitt er svo annað mál að rannsóknir benda til að hrygningartími rauðátunnar, á aðalhrygn- ingarsvæðum nytjafiska okkar fyrir suð- vestan landið, kunni að vera allbreytilegur bæði á milli ára og svæða og getur þar munað allt að hálfum til einum mánuði (Ást- þór Gíslason o.fl. 1994, Ólal'ur S. Ástþórs- son og Ástþór Gíslason 1999). Þessi breytileiki kann að vera afdrifaríkur fyrir afkomu og lífslíkur fisklirfanna og þar með árgangastyrk fiskstofnanna. En það er ekki bara fæðan, eða skortur á henni, sem getur verið afdrifarfk fyrir afkomu og lífslíkur fisklirfanna á meðan þær rekur í efstu lögum sjávar, því á þessum tíma verða einnig á vegi þeirra ýmis rándýr sem höggvið geta stór skörð í eggja- og lirfu- fjöldann. Sum þessara dýra eru hluti af svifinu, svo sem hveljur, pílormar, ljósáta og sumar tegundir krabbaflóa, en önnur eru það ekki, t.d. uppsjávarfiskar og ýmsir sjófuglar. Þá geta straumar og vindar haft mikil áhrif á útbreiðslu fiskeggja og fisklirfa rétt eins og annarra svil'dýra. Þeir geta jafnvel borið egg og lirfur til svæða sem henta þeirn illa og þar sem lífslíkur þeirra eru þarafleiðandi lakari. Af framansögðu má ljóst vera að það er mikilvægt að samhliða rannsóknum á stofn- stærð og veiðiþoli nytjastofna fari fram rannsóknir á hinu sviflæga æviskeiði fiskanna og þeim þáttum sem hafa áhrif á það. Um þessar mundir er unnið að rann- sóknum á því á Hafrannsóknastofnuninni hvort vöxtur og ástand fisklirfanna sé tengt breytingum í vexti og viðgangi rauðátunnar. Vonast er til að rannsóknirnar leiði til þess að skilningur okkar á breytilegri nýliðun fiskstofnanna aukist. ■ FLUTNINGUR RAUÐÁTU í NORÐUR-ATLANTSHAFI MEÐ STRAUMUM Rauðátuna rekur með straumum sem hún hefur litla sem enga getu til að synda á móti. Því kunna þeir að bera hana til annarra heimkynna, þar sem umhverfisaðstæður geta verið óhagstæðar. Sú aðlögun rauðátunnai' að hafa vetursetu á miklu dýpi fyrir utan landgrunnið kann þó að takmarka tap úr rauð- átustofnunum, m.a. vegna þess að bæði straumhraði og -stefna getur breyst með dýpi. Lega vetursetustöðvanna lyrir utan landgrunnið og straumakerfin þar gætu einmitt stuðlað að því að rauðátuna reki síður burt af íslandsmiðum að vetrinum (Ástþór Gíslason og Ólafur S. Ástþórsson 2000). 16
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.