Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 22
Rannsóknir í Surtsey
Nýlega kom út rit Surtseyjar-
félagsins, „Surtsey Research",
hið ellefta í röðinni. Surtseyjar-
félagið, sem stofnað var 1965 til
að stuðla að vísindalegum rannsóknum í
Surtsey, hefur áður gefið út tíu rit um
vísindarannsóknir í Surtsey. Fyrstu ritin
voru í formi fjölrits, en nú hefur ritið fengið á
sig yfirbragð vísindatímarits. Af þessari
ástæðu hefur nafni tímaritsins verið breytt
úr „Surtsey Research Progress Report“ í
„Surtsey Research". Ritið er á ensku, en
ritstjórar eru þeir Eyþór Einarsson, Karl
Gunnarsson og Sveinn Jakobsson.
Eins og kunnugt er myndaðist Surtsey við
eldgos á sjávarbotni á árunum 1963-1967.
Vel var fylgst nteð eldgosinu og hefur það
verið talið eitt best rannsakaða neðan-
sjávareldgos fyrr og síðar. En eins og hið
SURTSEY
RESEARCH
11
m
Tho SurtMy Rescarch Soclety • Roykjavlk
nýútkomna rit ber með sér, hafa marg-
víslegar rannsóknir einnig farið þar fram eftir
að gosum lauk. Surtsey hefur verið vöktuð
bæði af jarðfræðingum og líffræðingum og
eru þessar rannsóknir enn í fullurn gangi.
Surtsey er nú orðið vel þekkt meðal
náttúrufræðinga víða um heim. Mikilvæg
ástæða þess að vel hefur tekist til um
vísindalegar rannsóknir á þróun Surtseyjar,
er sú staðreynd að eyjan hefur verið friðland
frá árinu 1965. Þetta á sérstaklega við urn
rannsóknir á sviði líffræði, vísindamenn
hafa getað stundað sínar rannsóknir á
landnámi ýntissa lífvera í þeirri vissu að áhrif
mannsins hafa þar verið nær engin. Þannig
er Surtsey einnig þekkt meðal náttúru-
verndarsinna erlendis vegna þeirra jákvæðu
áhrifa sent friðun eyjarinnar hefur haft.
Ritið er hið glæsilegasta og er með fjölda
litmynda. 1 því eru 15 vísindagreinar um
margvísleg efni auk þess inngangs eftir for-
mann Surtseyjarfélagsins, Steingrím Her-
mannsson. Sex greinar fjalla um landnám
lífvera á landi, þar sem lýst er m. a. áhrifum
fuglavarpsins í Surtsey á frantvindu gróðurs
sem nú þekur um 4 % af flatarmáli eyjarinnar.
Fintm greinar fjalla urn landnám lífvera í fjöru
og á sjávarbotni við Surtsey og raunar
einnig um landnánt lífs á nýja hrauninu við
Heimaey. Þáeru fjórarjarðfræðilegargrein-
ar, m. a. unt vöxt móbergssvæðisins, um rof
af völdum sjávarog hversu lengi eyjan muni
standast rofið, og lýst er m.a. gerð korta af
Surtsey með lasertækni.
Astæða er til að fagna útkomu „Surtsey
Research". Hér á landi korna út fá vísinda-
tímarit í náttúrufræði og það er í raun undra-
verl að svo lítið félag sem Surtseyjarfélagið
(félagsmenn eru aðeins um 100) skuli hafa
bolmagn til að gefa út svo vandað og
Ijölbreytt rit. Ritið er til sölu hjá Náttúru-
fræðistofnun Islands að Hlemmi 3, Reykjavík.
-ÁI
20