Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 39

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 39
Rauðberjalyng NÆR GÓÐUM ÞROSKA HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON Sumarið 2000 verður lengi í minnum haft fyrir veðursœld og góða berjasprettu vfðast hvar á landinu. Vorið var fremur svalt, en áfallalaust, og mánuðimir júlí- september voru hlýir, fremur sólríkir og þurrviðrasamir nyrðra og eystra. A Austurlandi slapp berjalyng við næturfrost á blómgunartíma og skordýr gátu sinnt sínu hlutverki við frœvun óhindrað. Niðurstaðan birtist okkur sem svignandi greinar af bláberjum er leið á sumar og móar svartir af krœkiberjum. Hrútaber náðu góðum þroska annað árið í röð eystra, en það sem mestum tíðindum sœtti var að rauðberjalyng skartaði þroskuðum berjum á þeim fáu stöðum þar sem það vex á Austfjörðum (1. mynd). Hér verður sjónum beint að þessari tegund sem fáir veita athygli, jafnvel í sveitum þar sem hún hefur að líkindum vaxið frá því fyrir landnám. Astœðan er einkum sú að aðeins í hagstœðu árferði ná rauðber þroska og fljótt á litið geta menn haldið að um sé að rœða sortulyng. Rauðberjalyng, sem er af lyngætt, heitir á latínu Vaccinium vitis- idaea og er þannig af sömu ættkvísl og blaberjalyng (V. uliginosum) og aðalbláberjalyng (V. myrtillus). Sortulyng (Arctostapliylos uva- ursi) er af sömu ætt og rauðberjalyng en af annarri ættkvísl. Tegundum þessum svipar saman fljótt á litið en við nánari skoðun ber þó margt á milli. Blöð sortulyngs eru heilrend en á rauðberjalyngi eru jaðrar blaðanna oftast örlítið tenntir og með Hjörleifur Gutlormsson (f. 1935) lauk námi í líffræði með diplóm-gráðu frá háskólanum í Leipzig 1963. Búsettur í Neskaupstað frá 1963 og starfaði við kennslu og rannsóknir, forstöðumaður Náttúrugripasafnsins í Ncskaupstað 1971-1978, í Náttúruverndarráði 1972-1978 og alþingismaður 1978-1999. Hjörleifur hefur ritað fjölda greina um náttúrufræði, stjórnmál og umhverfisvernd og nokkrar bækur. Hann er nú sjálfstætt starfandi náttúrufræðingur. niðurorpnum röndum. Blöð beggja eru sígræn, á sorlulynginu þó meira gljáandi og að jafnaði dökkgrænni en á rauðberjalyngi. Greinar sortulyngs eru lengri og plantan breiðir meira úr sér en rauðberjalyng, sem myndar oft staka, nær upprétta stöngla sem tengjast skriðulum jarðrenglum. Krónur rauðberjalyngs eru bjöllulaga og mun opnari en á sortulyngi. Blómskipunin er stuttur, drúpandi klasi. Rauðberjalyng er algengt víða á norður- hveli og er getið um tvær aðgreindar deilitegundir (Hultén 1986, Mossberg 1994). Vex lyngið meðal annars í Færeyjum, Skandinavíu og Mið-Evrópu, á Bretlands- eyjum og Vestur-Grænlandi. A norsku og dönsku kallast það tyttebær, á sænsku lingon og á þýsku PreiBelbeere. A ensku er algengasta heitið cowberry. A meginlandi Evrópu er rauðberjalyng algengt í gisnu skóglendi, í deiglendi, á lyngheiðum og til Náttúrufræðingurinn 70 (1), bls. 37^10, 2000. 37

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.