Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 49
hunangsmýsla
Antechinomys spencerii
múlgara
Dasycercus cristicauda
tígrisköttur,
risapokamörður
Dasyurops maculatus
<á0 skúfpokamörður
Dasyuroides bvrnei
pokamoldvarpa Notoryctes typhlops pokaúlfur Thylacynus cynoceplialus mn\\Wfh
inkarotta vatnapokarotta
Caenolestes Cliironectes minimus
fu,isinosm SimSSMfot
cLá
7. mynd. Nokkrar tegundir pokadýra af pokamarðaœtt, Dasyuridae;
pokamoldvörpuœtt, Notoiyctidae; pokaúlfaœtt, Thylacinidae;
pokasnjáldruœtt, Caenolestidae, og posuœtt, Didelphidae.
(Encyclopœdia Britannica; teikning eftir A.G. Lyne.)
Hér verður aðeins
greint frá fáeinum
pokadýrum, en margt
í frásögninni á jafn-
framt við um aðra
fulltrúa þeirra.
Kengúrur.
Liðlega 50 tegundir af
kengúruætt, er grein-
ist í einar 15 ætt-
kvíslir, lifa í Ástralíu,
á Tasmaníu, Nýju-
Gíneu og nálægum
eyjum. Afturlimirnir
eru stórir og öflugir
og flest dýrin rísa
upp á þá og styðjast
við sterklega rófu.
Fimrn ættkvíslir
smávaxinna dýra
mynda sérstaka
undirætt, Potoroinae,
rottukengúrur. Þær
eru alætur en aðrar
kengúrur, undirættin
Macropodinae, eru
gróðurætur með hólf-
skiptan maga, þar
sent örverur stuðla að
meltingu fæðunnar
líkt og íjórturdýrum.
Kengúrur beita
framlimunum líkt og
menn höndum, en
allir fimm fingurnir
eru nteð hvössum
klóm og þumallinn grípur ekki á móti hinum
fingrunum. Á afturfæti er fjórða táin stærst
og með lengstri kló. Fimmta táin er einnig
öflug en önnur og þriðja eru rýrar og
samvaxnar. Fyrsta táin (samsvarandi
stórutá) er aðeins á minnstu kengúrunni,
bísamrottukengúru.
Kengúrur beita framloppunum í vörn. Þær
eiga þá til að halda andstæðingnum föstum
með þeim, rísa upp á rófu og tær og krafsa
leiftursnöggt með öflugum afturlimunum.
Þannig getur stór kengúrukarl rifið hund eða
mann á hol. Annars eru þetta gæfar skepnur
sem ekki leggja til annarra nema í nauðvörn.
Karlarnir berjast unt kvendýrin á fengitíma
en rneiða sjaldan hver annan.
Minnst er, sem fyrr segir, bísamrottu-
kengúra, Hypsiprymnodon moschatus (8.
mynd), um 35-50 cm, þaraferrófan 13-17
cm. Fullorðinn karl vegur um hálft kíló. Dýrin
lifa í regnskógum við strendur Queens-
lands. Fæðan er einkum skordýr og orrnar,
ásamt berjum og rótarhnýðum.
Stærsta kengúran, og jafnframt stærsta
pokadýrið, er rauðkengúra, Macropus
rufus (5. mynd). Karlamir verða allt að 1,8 m
47