Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 51

Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 51
tegunda. Nokkrum kengúrum var snemma útrýmt en aðrar þrífast vel, enda eru þær nú friðaðar eða veiðar háðar eftirliti. Talið er að stóru kengúrurnar - rauðkengúrur, grá- kengúrur og kletta- kengúrur - séu samanlagt fleiri en mennskir Astralir, en þeir nálgast nú 20 milljónir. Pokaúlfurinn Á 9- ™ynd. Pokaskolli, Sarcophilus harrisi. (Nowak 1990.) Tasmaníu Pokaúlfurinn, Thylacinus cynocephalus, einnig nefndur tasmaníuúlfur eða tasm- aníutígur (7. og 13. mynd), var stórt rándýr- um 1,5 til nærri 2 m, að meðtöldu 50-65 crn skotti, og 60 cni á herðakamb - sem minnti í útliti og lífsháttum á úlf eða stóran hund. Hann var gulgrár eða gulbrúnn með dökkar rákir þvert yfir hrygg, lend og rófu, ljósari að neðan. Opið á grunnum poka sneri aftur og í honum bar kvendýrið tvo til fjóra unga. Pokaúlfar lifðu á meginlandi Ástralíu og á Nýju-Gíneu á jökultíma og fram á nútíma. Yngstu leifar dýranna á meginlandinu eru um 3000 ára. Trúlega áttu villtir dingóhundar þátt í að útrýma þeim, en dingóar voru aldrei áTasmaníu. Eftir að kvikfjárrækt hófst á Tasmaníu lögðust pokaúlfar á kindur og alifugla og stjómvöld lögðu fé til höfuðs þeim. Snemma á 20. öld voru þeir orðnir fágætir og síðan 1930 er ekki vitað til þess að pokaúlfur hafi verið felldur. Árið 1933 náðist pokaúlfur lifandi í síðasta sinn og drapst ári síðar. Síðan hafa menn þó annað veifið þóst sjá þessi dýr en 1979 lýstu áströlsk stjómvöld teg- undina aldauða. POKASKOLLI Annað rándýr á Tasmaníu er pokaskolli eða tasmaníuskolli, Sarcophilus harrísi (7. og 9. mynd), gildvaxið dýr með snubbótt trýni og úftð skott, 75-110 cm, þar af er skottið 23-30 cm, og 4-12 kg. Karlamir eru stæiri en kvendýrin. Feldurinn er svartur eða dökk- brúnn með hvíta rönd á barka og hvíta bletti á síðum. Tennurnar eru öflugar líkt og í hýenu. Eftir mánaðar meðgöngu á haustin (í mars-apríl) gýtur kvendýrið þremur til fjórum ungurn sem hafast við í pokanum í fjóra mánuði. Pokaskolli lifir á ýmsum hryggleysingjum og hryggdýrum, þar á rneðal eiturslöngum, en leggur sér einnig til munns gróður, að vísu í litlum mæli. Samkvæmt einni athugun er uppistaðan í fæðunni vallafíur, vambar, sauðfé og kanínur. Þar sem bændur töldu pokaskolla skæðan dýrbít var hann mis- kunnarlaust veiddur framan af, og snemma á 20. öld virtist tegundin í hættu. Auk ofveiða kom við sögu eyðing búsvæða og farsótt sem herjaði á dýrin upp úr aldamótunum. En svo náðu stofnarnir sér og nú er skepnan algeng víða á Tasmaníu, einkum fjarri ntannabyggð. Rannsóknir benda til þess að pokaskolli sé klént rándýr og ráði ekki niðurlögum stórra dýra, hafi enda sjaldan eða aldrei bitið bóndans fé. Hann er hins vegar þeim mun hæfara hrædýr og nýtir jafnt húðir og bein sem kjöt. Meðan pokaúlfar lifðu á Tasmaníu hafa pokaskollar trúlega notið leifanna af bráð þeirra. Áður var pokaskolli á meginlandi Ástralíu en hvarf þaðan á forsögulegum tíma, varð líklega undir í samkeppninni við aðflutta dingóhunda. 49

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.