Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 58
Hatturinn var drapplitur til gulbrúnn, fyrst
með dæld í miðju en síðan flatur með niður-
beygt barð, þurr og virtist vera lóhærður,
þunnur, 5-7 mm í þvermál, hattholdið mjög
þunnt, gert úr daufbrúnum lausol'num
sveppþráðum með sylgjum. Fanir voru gul-
drapplitar, festar á stafinn og örlítið niður-
vaxnar. Þær hafa þumlur á eggjunum, sem
byrja í hnúð sem út úr stendur þráður.
Stafurinn var miðstæður, 2-3 mm langur og
um 0,3 mm breiður, jafnbreiður allur og
gerður úr brúnum samsíða þráðum, ýmist
beinn eða boginn (nálægt 90°) og er þá
festur við sinuna rétt utan við hattbarðið.
Gróin voru ljósbrún, 6-8 x 3-4 pm, slétt-
veggja, næstum sporbaugótt en heldur
digurri í afturendann, sem ber hliðstæðan
festinabba, og grennri í framendann, sem á
er afar ógreinilegt spírunarop. Gróprent var
brúnt.
Þegar heim var komið skoðaði ég svepp-
inn, mældi stærð hans og tók myndir og
þurrkaði hann síðan. Að því loknu gekk ég
út á tún í Bryðjuholti og fann sveppinn fyrst
á snarrótarsinu við kúagötu í túnjaðrinum
(órækt) austur undir Bryðjuholtsmúla og
svo aftur á sinu mun fíngerðari gras-
tegundar, líklega língresis, í skógræktarreit
ofan túns á Bæjarásnum. Þessi smávaxni
hattsveppur fannst sem sagt sama daginn á
grasinu á þrem stöðurn, sem eru tæpan 1 km
og 1,4 km frá þeint fyrsta í landi Högnastaða.
Ég reyndi án árangurs að greina sveppinn
til tegundar og leitaði þá aðstoðar Helga
Hallgrímssonar, senr er manna fróðastur um
íslenska hattsveppi. Hann taldi líklegast að
þetta væri tegundin Melcmotus phillipsii
(Berk. & Broome) Singer sem ég gat staðfest
með því að bera sýnin saman við lýsingar og
myndir af tegundinni. Og þar með bættist
enn ein tegundin við íslensku sveppa-
flóruna.
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Náttúrufræðistofnun Islands
Pósthólf 180
602 Akureyri
Netfang: gge@ni.is
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (f. 1959) lauk B.S.-
prófi í líffræði frá Háskóla íslands 1981 og
doktorsprófi í svcppafræði frá Manitobaháskóla í
Winnipeg í Kanada 1990. Guðríður Gyða starfar á
Náttúrufræðistofnun íslands, Akurcyrarsetri.
56