Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 61
1. mynd. Múlajökull. Hann er einn formfegursti skriðjökull landsins og skríðurfrá hveli
Hofsjökuls niður í Þjórsárver. Kerfjall og Arnarfell hið mikla rísa austan jökulsins en
Hjartafell vestan hans. Þar vestur af er Nauthagajökull. Arnarfellsmúlar mynda
bogsveigðar urðaröldurframan við jökulinn. Þœr ertt myndaðar íframhlaupum hans á 18.,
19. og 20. öld. Ysta garðaröðin heitir Fremri-Arnatfellsmúlar. Ljósm.: Oddur Sigurðsson
(tekin 30. jitní 1998).
Á milli kainbsins og jökulsins voru sléttir
aurar með óteljandi jökullænum, er að lokum
drógust saman í allstórar kvíslar og runnu
fyrir endann á kambinum. Enginn eli er á því
að kambur þessi ltefur myndast fyrir
tilverknað jökulsins. Einhverntíma hefur
jökultungan því náð fram að kambinum, er
nú stendur eftir sem sönnun unt gríðar-
mikinn afturkipp jökulsins. En vitanlega
hefur þetta átt sér stað fyrir - meira að segja
löngu fyrir landnámstíð íslands, og nægir í
því efni að gera sér í hugarlund, hve langan
tíma hefði þurft til þess, að mosinn á
malarkambinum næði slíkri þykkt - svo
þykkur hefði hann aldrei orðið fast við
ísjaðarinn. Enn fremur má benda á, hversu
langan tíma hefur þurft til að troða hina
djúpu, greinilegu götuslóða, sem örsjaldan
hafa verið farnir á síðustu öldum, þótt þeir
væru fyrrum tíðfarnir. Og loks hefði engum
verið fært að leggja leið sína framan undir
malarkambi þessum, meðan hann var áfastur
jöklinum, sakir vatnsaga frá ísnunt. Það mun
því óhætt að fullyrða að afturkippurinn hafi
ekki átt sér stað á síðustu 1000 árum, og
sennilega hefur hann orðið mörgum öldum
áður en ísland byggðist." (Hrakningar og
heiðavegir. 11. bindi, bls. 75-76. Jón
Eyþórsson þýddi.)
Hér er margt skarplega athugað. Full-
yrðing Schytes um að kambinum, þ.e.
Fremri-Arnarfellsmúlum, hafi verið ýtt upp
af jökli sem síðar haft hötfað er merkileg, ekki
síst rneð tillili til þess að árið 1840 voru
hreyfingar jökla mönnum ekki rnjög ljósar.
Athugun hans á fjarlægðinni frá kambi að
jökli, 200 m, er einnig mikilsverð. Hún sýnir
að á þessum tíma var jökullinn aðeins í
seilingarfjarlægð frá garðinum en náði
59