Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 24
1. mynd. Brandugla. - Short-eared Owl. Ljósm./photo
Hjálmar Bárðarson.
■ AÐFERÐIR
Ég hef fengið 81 brandugluælu frá fjórum
stöðum á landinu til rannsókna. Þessir staðir
eru Elliðaárdalur og Hafravatn á Innnesjum,
Stykkishólmur og Hvallátur á Breiðafirði (1.
tafla). Æiunum var öllum safnað um vetur
eða síðla vetrar og endurspegla l'æðuna frá
því fyrr sama vetur. Þær voru skoðaðar eins
og lýst er hér á undan. Ein önnur musateg-
und finnst hér á landi auk hagamúsarinnar
og það er húsamúsin (Mus musculus). Húsa-
músin er fyrst og fremst bundin við manna-
bústaði. Hægt er að greina tegundirnar í
sundur m.a. á tönnum (sbr. Karl
Skírnisson 1993), og það var gert
þegar ugluælurnar voru skoðaðar.
■ NIÐURSTÖÐUR OG
UMFJÖLLUN
Samtals fundust leifar af 106 hrygg-
dýrum í ælunum. Þar af voru 53
hagamýs (50%), 51 sendlingur
(48%), 1 tildra (1%) og 1 snjó-
tittlingur (1%). Miðað við lífþyngd
var sendlingurinn þýðingarmesta
fæðan og fuglar vógu alls 69% af
heildinni (2. tafla). Samkvæmt
þessum gögnum eru fuglar mikil-
vægur hluti vetrarfæðu íslenskra
brandugla. Þetta er ólíkt því sem
lýst hefur verið frá Norður-Evrópu
en þar vega fuglar yfirleitt innan
við 10% af fæðu branduglu.
Hagamýs finnast á öllum athuganasvæð-
unum, m.a. í Hvallátrum á Breiðafirði. Svæð-
in voru þó all frábrugðin með tilliti til fæðu-
samsetningar (2. tafla). A Innnesjum fund-
ust eingöngu hagamýs í ælum. í Stykkis-
hólmi var hlutdeild hagamúsa mun minni
(36% miðað við fjölda og 20% miðað við
lífþyngd) og aðalbráðin þar var sendlingur.
Hagamýs skiptu minnstu máli í Hvallátrum,
aðeins 14% miðað við fjölda og 7% miðað
við lífþyngd. Aðalbráðin þar var sendlingur
líkt og í Stykkishólmi. Það er athyglisvert að
branduglan sækir stóran hluta af fæðu sinni
í fjöruna, en sendlingar og tildrur eru bundir
við það búsvæði á veturna.
1. tafla. Söfnunarstaðir og fjöldi brandugluœla. - Number of Short-eared Owl pellets
collected and collection localities.
Staður Locality Safnað Collection date Fjöldi æla Number ofpellets Salnandi Collector
Stykkishólmur (trjálundur) 14. mars '93 39 Trausti Tryggvason
Hvallátur (fjárhús) Apríl '94 26 Þorvaldur Björnsson
Elliðaárdalur (trjálundur) Vetur 1995- 96 10 Yann Kolbeinsson
Hafravatn (trjálundur) Febrúar '97 6 ÓlafurK. Nielsen
86