Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 28
2. mynd. Líkan af etrúrskum stríðsvagni,
biga, frá 6. öld f.Kr. (Metropolitan Museum
ofArt, New York).
eldisstöðvum út á gresjur í Mongólíu (van
Dierendonck 1997).
I október 1995 rakst franskur leiðangur á
hjörð villtra hesta í afskekktum dal í Tíbet.
Leiðangursmenn þóttust hafa uppgötvað
áður óþekkta undirtegund villihesta en nú er
ljóst að þetta voru afkomendur taminna
hesta sem lagst höfðu út.
hafa verið notaður til reiðar og er þar með
elsti þekkti reiðhesturinn.
FYRSTU
STRÍÐSHESTARNIR
Þeir Anthony telja að ekki hafi langur tími
liðið frá því að Úkraínumenn beisluðu fyrsta
hestinn þar til þeir fóru að brúka hross til
reiðar í hernaði þar sem þau veittu eigendum
sínum verulega yfirburði og röskuðu valda-
hlutföllum í Asíu og síðar í Evrópu.
STRIÐSVAGNAR OG
REIÐHESTAR
Lengi eftir að menn fundu upp hjólið virðast
hermenn frekar hafa beitt hestum fyrir tví-
hjóla stríðsvagna en riðið þeim. Breskur her-
sagnfræðingur, John Keegan, skýrir þetta
þannig í nýrri bók að hestarnir hafi þá verið
3. mynd. Assyrískir riddarar. Lágmynd á hallarvegg í Níníve (Der Spiegel).
UPPHAF HROSSAELDIS
Elstu þekktu menjar hrossaeldis eru um 6000
ára, frá bronsaldarsamfélagi í Úkraínu.
(Anthony o.fl. 1991; sjá útdrátt í Fréttum f
Náttúrufrœðingnum 62 (3—4), bls. 207-208,
1993.) Ljóst er að hestarnir voru aldirtil slátr-
unar. En smásjárskoðun á framjöxlum eins
þeirra leiddi í ljós slit eftir beislismél. Þar sem
hjólið var þá ekki þekkt hlýtur hesturinn að
of litlir til að bera riddara.2
Villihestar eru á stærð við íslenska hesta
og tamdir afkomendur þeirra hafa frá upp-
hafi verið mannbærir eins og ráða má af
gögnunum frá Úkraínu. En þeir hafa trúlega
átt erfitt með að standa undir brynjuðum
riddurum og þungum vopnum þeirra. Þess
vegna hafa menn að mati Keegans fremur
2Hugmyndir Keegans eru hér sóttar í grein í þýska
vikuritinu Der Spiegel (1995).
90