Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 41
Eins og að framan greindi lét Konrad Richter
gera aldursgreiningu á mósýni undan hlaup-
inu. Ekki hefur tekist að hafa uppi á þessari
greiningu og hann nefnir hana ekki í skrifum
sínum um Loðmundarfjörð 1958 og 1960enda
er hann þar að fjalla um perlustein. Ólafur
Jónsson vitnar óbeint til þessarar greiningar í
Berghlaupum (bls. 158). Heimildarmaðurhans
var dr. Þorleifur Einarsson. Þorleifur kom í Loð-
mundarfjörð vegna perlusteinsins um 1970.
Hann skoðaði hlaupið og tók öskulagasnið
ofan á því. Elsta öskulag sem hann fann var úr
Öræfajökli frá 1362. Richter tjáði honum að
aldurinn á mælda sýninu hefði reynst um 1600
ár. Það var tekið í farvegi Fjarðarár hjá Sævar-
enda. Nánari upplýsingar skortir en þessi
aldur er ekki ótrúlegur þegar útlit hlaupurðar
og brotsárs er haft í huga.
■ niðurstöður
Loðmundarskriður eru 1000-2000 ára gamalt
berghlaup. Hvað flatarmál og rúmmál varðar
er það í hópi stærstu berghlaupa á Islandi.
Það óvenjulegasta við hlaupið er hve
hlauphornið er lágt og hve langa vegalengd
það fór. Þótt frásögn Landnámu um hlaupið
hafi yfir sér ólíkindablæ sýnir hún að á
fyrstu öldum byggðar var uppruni skriðn-
anna auðsær og að menn velktust ekkert í
vafa um hina náttúrufræðilegu skýringu á
tilurð þeirra. Skriðurnar hafa lítið verið
rannsakaðar og verðskulda nánari skoðun.
■ HEIMILDIR
Ágúst Guðmundsson 1997. Vatnsdalshólar.
Náttúrufræðingurinn 67. 53-62.
Ámi Hjartarson 1995. Jarðrask í Nesfjalli við
Norðfjörð. Bls. 49-52. /: Eyjan f eldhafi. Ritstj.
Bjöm Hróarsson, Dagur Jónsson og Sigurður
Sveinn Jónsson. Gott mál, Reykjavík.
Árni Hjartarson, Freysteinn Sigurðsson & Þórólfur
H. Hafstað 1981. Vatnabúskapur Austurlands.
OS-81006/VOD-04. Orkustofnun, Reykjavík.
Hawkes, Leonard 1917. A remarkable rock stream
in East Iceland. Geological Magazine, N.S., Dec-
ade VI, Vol. IV. 97-102.
Ólafur Jónsson 1957. Skriðuföll og snjóflóð I.
Bókaútgáfan Norðri, Akureyri. 586 bls.
Ólafur Jónsson 1976. Berghlaup. Ræktunar-
samband Norðurlands, Akureyri. 623 bls.
Richter, Konrad 1958. Bericht iiber die Unter-
suchung islándischer Lagerstatten und deren
Nutzungsmöglichkeiten aufgrund einer Be-
reisung 1958. (Útgáfustaðar ekki getið.)
Richter, Konrad 1960. Úber Perlite mit besonderer
Berúcksichtigung islandischer Vorkommen.
Zeitschrift der Deutschen Geologischen
Gesellschaft. Band 112. 197-207.
Skúli Víkingsson og Sigbjöm Guðjónsson 1984.
Blönduvirkjun. Farvegur Blöndu neðan Eiðs-
staða I. Landmótun og árset. OS-84046/VOD-
06. Orkustofnun, Reykjavík.
Tómas Tryggvason 1955. Loðmundarskriður.
Náttúmfræðingurinn 25. 187-193.
Tómas Tryggvason 1957. Perlusteinn. Tímarit
Verkfræðingafélags íslands 42.65-70.
Tómas Tryggvason 1957. Þættir úr jarðfræði Aust-
fjarða. ÁrbókFÍ 1957. 102-111.
Þorvaldur Thoroddsen 1925. Die Geschichte der
islandischen Vulkane. Det Kongelige Danske
Videnskabemes Selskabs Skrifter, Kpbenhavn
458 bls.
Þorvaldur Thoroddsen 1933. Lýsing íslands,
annað bindi. Reykjavík.
Þorvaldur Thoroddsen. Ferðabók III. Snæbjöm
Jónsson & Co. Reykjavík 1959. 367 bls.
■ SUMMARY
The Loðmundarskriður Kock Slide
East Iceland.
The Loðmundarskriður Rock Slide in the fjord
Loðmundarfjörður, East Iceland, is among the
greatest rock slides in Iceland. Its area and some
other sizes are given in table 1. Its slide angle, 7°,
is remarkable because it is the lowest known in
the country. The slide is made of a mixture of
basaltic, andesitic and rhyolitic rocks. The scree
has two main lobes. One of them has gone 5.6 km
to the south-southwest from the scar, swept
across the valley and 10-20 m uphill at the other
side. The other lobe turned towards east because
of the landscape and reached 5 km length. The
estimated age of the landslide has been set at
1000-2000 years.
PÓSTFANG HÖFUNDAR/AuTHORSAddRESS
Árni Hjartarson
Orkustofnun /National Energy Authority
Grensásvegi 9
IS-108 Reykjavík
103