Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 43

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 43
Bleikja á AUÐKt HEIÐI GUÐNI GUÐBERGSSON OG ÞÓRÓLFUR ANTONSSON Þegar vötn eru notuð sem miðlunarlón verða breytingar á vatnsborði þeirra sem eru frábrugðnar því sem gerist við náttúrulegar aðstæður. Miðlunarlón eru, eins og nafhið bendir til, notuð sem vatnsbanki sem safnað er í þegar rennsli er mikið og miðlað úr þegar rennsli minnkar. Á norðlœgum slóðum er yfirleitt safnað í slík lón frá því leysingar byrja að vori og fram undir haust þegar hæstu vatnsstöðu er náð, og síðan miðlað úr þeim yfir vetrannánuðina þegar rennsli er minna. Með þessu móti er hægt að jafna vatnsrennsli og nýta meðaltalsvatnsorkuna. Orku- notkun er jafnan mest yfir vetrarmánuðina og eru miðlunarlón því einskonar orkugeymsla milli árstíða. atnsborðsbreytingar leiða yfir- leitt til aukinnar útskolunar jarð- vegsefna úr bökkum frá hæsta til __________lægsta vatnsborðs. Hvernig og hve mikil útskolunin verður er m.a. háð lögun vatnsskálarinnar, jarðlagagerð, botn- gerð, öldugangi og miðlunarhæð. Það sem skolast fyrst burtu eru fínustu agnirnar og er rofið því verulega háð því úr hverju bakk- arnir eru gerðir. Annað hvort skolast rof- Guðni Guðbergsson (f. 1958) lauk B.Sc.-prófi í líf- fræði frá Háskóla íslands 1983 og cand.scient- prófi í fiskifræði frá Háskólanum í Ósló 1985. Hann hefur starfað sem sérfræðingur hjá Veiði- málastofnun frá árinu 1985 og unnið að rannsókn- um á fiskstofnum í ám og vötnum víðsvegar um landið. Þórólfur Antonsson (f. 1957) lauk B.Sc.-prófi frá Háskóla íslands 1981, B.Sc.-honour frá H.í. 1983 og vinnur nú að M.S.-ritgerð frá sama skóla. Hann starfaði sem verkefnisstjóri á Veiðimálastofnun 1982-1984, var framkvæmdastjóri hjá fiskeldis- fyrirtæki á árunum 1984-1988 og hefur sfðan unnið við rannsóknir á fiskistofnum f ferskvatni hjá Veiðimálastofnun. efnin út úr miðlunarlóninu eða að þau botn- falla á dýpri hlutum þess. Á árunum upp úr 1920 fóru menn að gera sér grein fyrir að botndýra- og fiskstofnar geta tekið miklum breytingum við miðlun. Áhrif miðlunar eru því ekki ný vísindi þó þekking á afleiðingunum aukist stöðugt (Aass og Borgstrpm 1987). Vegna rofs og þurrkunar á strandsvæðum yfir lengri tímabil minnkar gróður í vötn- unum einkurn þar sem miðlun nær til. Hve gróðurbelti ná djúpt er háð gegnsæi vatns- ins. Við mikið rof, að ekki sé talað um jökul- aur, minnkar gegnsæi vatnsins verulega, einnig framleiðsla hágróðurs og þar með næring og skjól fyrir smádýr. Rof á strandsvæðum leiðir til aukinnar út- skolunar næringarefna sem leiðir til aukinnar framleiðslu svifþörunga meðan rofs gætir. Fjölgun svifþörunga er þó háð því að aukning næringarefna vegi þyngra en nei- kvæð áhrif minna gegnsæis. Samfara fjölgun svifþörunga getur orðið mikil aukning á framleiðslu dýrasvifs, auk Náttúrufræðinguiinn 67 (2), bls. 105-124, 1997. 105

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.