Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 45

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 45
BLÖNDUVIRKJUN LANGSNIÐ í VATNSVEGI STÖÐVARHÚS YFIRLITSMYND 0 2,5 5 km 1. mynd. Yfirlitsmynd og þversnið af veituleið og virkjunarlónum Blönduvirkjunar. - The study area in NV-Iceland and Blanda hydroelectric facilities. gert ráð fyrir að vatnsborð verði hækkað og lónið stækkað í 56 km2. Við það mun miðlunarhæð aukast í tæpa 13 m. Vatni úr Blöndulóni er veitt um lokur við Kolkustíflu, um skurði til Þrístiklu, Smalatjarnar og Aust- ara-Friðmundarvatns en þaðan um Fiskilæk til Gilsvatns og um Gilsá til inntakslóns virkj- unarinnar. Frárennslisgöng frá stöðvarhúsi virkjunarinnar opnast í Blöndufarveg rétt ofan ármóta Blöndu og Gilsár. Yfirfall á Blöndulóni er á stíflu við Reftjarnarbungu, um farveg Blöndu í Blöndugili og yfirfall frá inntakslóni er á Gilsárstíflu um farveg Gilsár. Rennsli um Kolkustíflu inn á veituleiðina getur verið mjög mismikið eftir orku- framleiðslu virkjunarinnar. Endurnýjunar- tími vatna á veituleið er því misjafn og fer bæði eftir rennsli og stærð vatna. Ef miðað er við að rennslið sé um 39 mVsek, sem er meðalrennsli Blöndu, er endurnýjunar- tíminn um 6 sólarhringar í Þrístiklu og 0,6 sólarhringar í Austara-Friðmundarvatni. Ekki eru til beinar mælingar á breytingum á botngerð vatna á veituleiðinni, en þó er ljóst að mest af því fína efni sem var á botni grunnu vatnanna, Austara-Friðmundar- vatns og Gilsvatns, hefur skolast út úr þeim og eftir stendur mun harðari botn. Líklegt er að efni úr rofi bakka og jökulaur úr framburði Blöndu setjist til þar sem dýpi er meira, eins og í Þrístiklu og inntakslóninu. Jökullitur og gegnsæi vatns í Blöndulóni breytist eftir árstímum og getur veðurfar einnig haft áhrif þar á yfir sumarmánuðina. Verulegt magn jökulaurs fellur út á leið um lónið, sem kemur fram í mismunandi rýni (gegnsæi) eftir fjarlægð frá innrennsli. Ekki eru til mælingar á dreifingu svifaurs um veitur Blönduvirkjunar en til marks um mun á svifaur innan Blöndulóns mældist um 12 cm rýni austan Sandárhöfða 4. ágúst 1994 en sama dag var rýnið um 60 cm innst í Sandárflóa (Guðni Guðbergsson o.fl. 1995). Samkvæmt mælingum 22. ágúst 1995 var rýni í vötnum á veituleiðinni svipað því sem mældist í Sandárflóanum, sem var um 20 cm. Vegna lokubúnaðar og stíflna er halda uppi vatnsborði í vötnunum á veituleiðinni getur fiskur synt eða hrakist niður eftir veituleiðinni en á ekki gengt upp aftur. Fyrirfram var ljóst að virkjun Blöndu hefði mikil áhrif á lífríki vatnasvæðisins en ekki var 107

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.