Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 58

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 58
 Austara-Friðmundarvatn eftir virkjun 0 40 2 1 : 0 B • 1 • 130 « 1 : , : S e n ° ° 1 • 20 § 9 • | 8 8 % ) 2 4 é é 10 Aldur (ár) 10. mynd. Dreifing lengdar við aldur hjá bleikju úr tilraunaveiðum í Mjóavatni og Austara-Friðmundarvatni. Tekin eru saman árin fyrir virkjun annars vegar og árin eftir virkjun hins vegar. - Length distribution of Arctic charr in Lake Mjóavatn and Lake Austara-Friðmundarvatn before and after the building of a hydroelectric powerplant in River Blanda. fiskur bærist niður veituna. Breytingar koma fram í flestum þeirra þátta sem mældir voru svo sem stærð, holdafari, kynþroska og fæðu. Þær breytingar, sem fram koma í fæðu, sýna að breytingar verða einnig á búsvæð- um og samkeppnisstöðu fæðudýra og hugsanlega einnig lfkur á afráni þeirra. Um beinar breytingar á samsetningu og fram- leiðslu fæðudýra er þó ekki hægt að segja nákvæmlega til um, þar sem ekki var gerð sérstök úttekt á smádýralífi önnur en sú sem fram kemur í fæðu fiska. Breytingar á fæðu bleikju fyrir og eftir virkjun eru greinilegar þegar borin eru saman vötnin á veitu- leiðinni, A-Friðmundarvatn og Þrístikla, annars vegar og vötnin utan hennar, V- Friðmundarvatn og Mjóavatn hins vegar. í þessari rannsókn sést hve nauðsynlegar viðmiðunarrannsóknir eru eins og þær sem gerðar voru í óröskuðu vötnunum. Náttúru- legar sveitlur eru augsýnilegar en þó vel að- greinanlegar frá röskunaráhrifum virkjunar- innar. Glögglega má sjá gildi þess að rann- sóknir standi um lengri tíma og vöntun á upplýsingum frá einstaka vötnum og árum getur verið mjög bagaleg og rýrir fljótt gildi langtímarannsókna í heild. Að frádregnum náttúrulegum sveiflum hefur sá framgangur sem orðið hefur í vötn- unum á Auðkúluheiði verið svipaður þeim sem búist var við fyrirfram og byggist á þeirri reynslu sem fengist hefur af rann- sóknum á miðlunarlónum við Þjórsá og Tungnaá. Þar kom fram hraður vöxtur í fiskstofnum, bæði í fjölda og vexti einstakl- inga, fyrst eftir virkjun en þegar frá leið fór vöxtur einstaklinga og kynþroskastærð minnkandi og væntanlega framleiðsla einnig 120

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.