Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 59
Austara-Friðmundarvatn fyrir virkjun
(B)
5 |
0 '
..lliil.
Kynþroska/Aíafure
Ókynþroska/
Immature
12 14 16 18 20 22 24 26 28 30 32 34 36 38 40 42 44 46
Austara-Friðmundarvatn eftir virkjun
(A)
..Illllllllllll.lllu.il.........
12 14 16 18 20 22 24 26 28 30 32 34 36 38 40 42 44 46
(B)
Mjóavatn fyrir virkjun
.lllllllli.llll i.. i,n..............
12 14 16 18 20 22 24 26 28 30 32 34 36 38 40 42 44 46
25 i
Mjóavaln eftir virkjun
(A)
Lengd - Length (cm)
Jl 11 nfl^ nn
12 14 16 18 20 22 24 26 28 30 32 34 36 38 40 42 44 46
11. mynd. Lengdardreifmg kynþroska og ókynþroska
bleikju í tilraunaveiðum í Mjóavatni og Austara-
Friðmundarvatni. Tekin eru saman árin jyrir virkjun
annars vegar og árin eftir virkjun liins vegar. - Lengtli
distribution of mature and immature Arctic charr in
Lake Mjóavatn and Lake Austara-Friðmundarvatn be-
fore (B) and after (A) the building of the Hydroelectric
Power-Plant in River Blanda.
(Þórólfur Antonsson og Guðni Guðber-gs-
son 1991 c). Á Auðkúluheiði er enn það stutt
frá því virkjað var að ólíklegt er að fisk-
stofnar svæðisins hafi náð þeirri mynd sem
mun verða dæmigerð fyrir nýtt ástand. Miðl-
unaráhrif úr Blöndulóni og rek fisks þaðan
niður á veituleiðina standa enn. Búast má
við því að sá hraði vöxtur og gott holdafar
bleikjunnar sem nú sést í Þrístiklu,
A-Friðmundarvatni og Blöndulóni
standi ekki nema stutt.
Enn er nokkur tími þar til fisk-
stofnar vatna á veituleiðinni hafa
aðlagast breyttum aðstæðum.
Ekki eru forsendur til að meta
vötnin á veituleiðinni og fisk-
stofna þeirra með tilliti til nýting-
ar, í samanburði við það sem áður
var, fyrr en tímabundnum áhrif-
um rofs og útskolunar verður
lokið. Áhrifa rofs og útskolunar
gætir nú aðallega ofan úr
Blöndulóni og niður á veituleið-
ina. Áform um frekari stækkun
Blöndulóns innan tíðar mun
valda nýjum og auknum miðlun-
aráhrifum og þar með væntan-
lega aukinni framleiðslu fyrst í
stað sem fer síðan aftur dvínandi.
Það mun enn seinka því að fisk-
stofnar fari í það far sem verða
mun til frambúðar.
Nýting fiskstofna í vötnum hér
á landi er fyrst og fremst með
tvennum hætti: stangveiði og
veiði með einhverskonar netum,
mest lagnetum. Það mun skipta
miklu varðandi nýtingu hver
kynþroskastærð og vöxtur
bleikju í vötnunum á veituleið-
inni verður og einnig í Blöndu-
lóni. Eftirspurn og ásókn í veiði
fer að mestu eftir stærð fiska,
holdafari og veiðivon.
Samkvæmt framansögðu er
sett fram sú spá að draga muni úr
heildarfiskframleiðslu og kyn-
þroskastærð einnig minnka í
vötnunum á veituleiðinni og
Blöndulóni þegar útskolunar-
áhrifum lýkur. Stækkun Blöndulóns mun
fresta þeirri þróun um nokkur ár.
ÞAKKIR
Rannsóknir þessar voru unnar fyrir Lands-
virkjun sem kostaði þær. Friðþjófur Árna-
121