Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 62
röskun vatnsmiðlunar frá árinu 1991. Þau
vötn voru rannsökuð fjögur ár fyrir virkjun
og fjögur eftir virkjum. Til viðmiðunar voru
rannsökuð tvö vötn utan veituleiðar sem
ekki verða fyrir beinum áhrifum virkjunar. I
upphafi rannsóknar fyrir virkjun varð
fækkun í fiskstofnum allra vatnanna, einkum
stærri fiski, auk þess sem holdastuðull
lækkaði. Þessar breytingar eiga sér náttúru-
legar orsakir og eru leiddar líkur að því að um
hliðstæðar breytingar hafi verið að ræða og
urðu í flestum laxastofnum á Norðurlandi,
þar með talið Blöndu og bleikjustofnum í
Mývatni, á sama tíma. Vegna náttúrulegra
breytinga kom gildi rannsókna í viðmiðun-
arvötnum utan veituleiðar ótvírætt í ljós.
Ahrif virkjunar eru ekki að fullu komin
fram þar sem enn gætir áhrifa frá Blöndulóni,
en slík áhrif verða fyrst eftir að vatnsborði er
breytt. Þau lýsa sér í aukinni framleiðslu
fæðudýra og fiska. Slík áhrif í Blöndulóni ná
niður á veituleiðina með reki og fari fiska
sem komast niður en ekki upp veituleiðina. I
vötnunum verða breytingar af völdum
jökulaurs sem leiðir til minna gegnsæis og
minni frumframleiðslu. Gegnumstreymi
hefur einnig áhrif á framleiðslu, og fína efnið
á botni grynnri vatnanna A-Friðmundar-
vatni og Gilsvatni hefur skolast burt.
Breytingar hafa orðið og eru að verða á
fæðu fiska og viðgangi þeirra, sem þó er ekki
séð fyrir endann á, því áhrifa rofs gætir enn.
Leiddar eru líkur að því að fiskstofnar leiti í
svipað far og í virkjunarlónum á vatnsvæð-
um Þjórsár og Tungnaár þannig að dragi úr
vaxtarhraða og kynþroskastærð minnki.
Of snemmt er að meta gæði vatnanna sem
veiðivatna í samanburði við það sem var
fyrir virkjun því enn eru að eiga sér stað
breytingar á fiskstofnunum. Fyrirhuguð
stækkun Blöndulóns ntun á ný valda rofi og
breytingum á lífsskilyrðum sem munu
væntanlega ná niður á veituleiðina. Því mun
enn líða nokkur tími áður en hægt verður að
meta það far sem fiskframleiðsla og fisk-
stofnar munu leita í til frambúðar, í breyttu
umhverfi.
SUMMARY
Arctic charr in four lakes in
N-Iceland before and after building
ofa hydroelectric power plant
While a building hydroelectric power plant in
the glacier River Blanda, North Iceland, was un-
der construction, a dam was made and lakes in
the area were affected by regulation of turbid
glacial water and rapid water change. The lakes
are shallow, two of them having an average
depth of 1 and 5,5 m. Arctic charr (Salvelitius
alpinus) is the dominant fish species in these
lakes but the three-spined stickleback (Gastero-
steus aculeatus) is also present. This study was
done to determine whether building of hydro-
electric power plant in river Blanda would affect
fish production in the lakes. The study lasted for
8 years. Two lakes, with direct effects of glacial
water and rapid water changes after regulation,
were studied for four years before and four years
after building of the dam. For comparison two
lakes in the same region were studied. Changes in
growth rate, length at maturaty, condition, num-
bers and food was detected. These changes are
partly due to natural fluctuations an partly a
concequence of the hydroelectric development
in the area.
PÓSTFANG HÖFUNDA/
AUTHORS' ADDRESS
Guðni Guðbergsson
Þórólfur Antonsson,
Veiðimálastofnun
Vagnhöfða 7
IS-112 Reykjavík
124