Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 63
Gömul
MORÐGÁTA
UPPLÝST
Nýlega tókst með erfðatœkniaðferðum
að ákvarða beinfimm einstaklinga sem
urðu fórnarlömb blóðugrar byltingar
fyrir 79 árum. Hér verður greint frá
rannsóknunum og aðdraganda þeirra.
byltingunni í Rússlandi 1917
var Nikulás II keisari hand-
tekinn og fluttur með fjölskyldu
sinni til Tobolsk og þaðan í
aðra síberíska borg, Jekaterínbúrg eða
Katrínarborg, undir austurhlíðum Úral-
fjalla. (Borgin var kölluð Sverdlovsk á
dögum Sovétríkjanna en hefur nú aftur
fengið upprunalegt nafn sitt.)
■ AFTAKAN
Þegar her hvítliða nálgaðist Katrínarborg
úr austri fól Lenín sovétstjórninni í Perm,
sem réð Úralsvæðinu, að „útrýma Róman-
ovunum“. Og aðfaranótt 17. júlí 1918
knúði tólf ntanna aftökusveit dyra á húsinu
þar sem fangarnir voru geymdir. For-
sprakkinn kvaðst eiga að flytja keisarafjöl-
skylduna á öruggari stað.
Örnólfur Thorlacius (f. 1931) lauk fil.kand.-prófi í
líffræði og efnafræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð
1958. Hann var kennari við Menntaskólann í Reykja-
vík 1960-1967, Menntaskólann við Hamrahlíð 1967-
1980 og rektor þess skóla 1980-1995. Samhliða
kennslustörfum hefur Örnólfur samið kennslubækur og
hann hafði um árabil umsjón með fræðsluþáttum um
náttúrufræði í útvarpi og sjónvarpi. Hann var um skeið
ritstjóri Náttúrufræðingsins.
í þess stað var fólkið leitt niður í kjallara
hússins og tekið af lífi með skotvopnum og
byssustingjum. Samkvæmt skýrslu sem
síðar var birt var aftökusveitin með öllu
óvön slíku verki og „ferlið“, frá því að
fyrsta skotið felldi keisarann þar til
staðfest var með púlsgreiningu að enginn
væri á lífi, tók tuttugu mínútur. Einkum
virtust byssukúlur vinna illa á dætrum
keisarans.
Nikulás var þá fimmtugur og kona hans
Alexandra 46 ára. Dætur þeirra fjórar voru
Olga, 22 ára, Tatjana, 21 árs, María, 19
ára, og Anastasía, 17 ára. Yngstur, 13 ára,
var ríkisarfinn, Alexej. Fernt sem með
þeim var í húsinu, þar með læknir fjöl-
skyldunnar, Bodkín, var líka myrt svo
enginn yrði til frásagnar.
Þegar líkin voru svipt klæðum sást að
prinsessumar höfðu falið gimsteina fjöl-
skyldunnar í lífstykkjum sínum. Þar fékkst
skýring á því hvers vegna skotin hrukku af
þeim.
Eftir að hellt hafði verið sýru yfir lrkin
til að gera þau torkennilegri var þeim
kontið fyrir í aflögðum námugöngum og
nántunni lokað með handsprengjum.
■ LEITIN AÐ LÍKUNUM
Sovétstjórnin reyndi lengi að fela morðin.
Samkvæmt fréttatilkynningu hafði keisar-
inn fyrrverandi verið sekur fundinn um
ýmsa glæpi gegn þjóðinni og tekinn af lífi
en fjölskylda hans var óhult. Árið 1924
I
Náttúrufræðingurinn 67 (2), bls. 125-128, 1997.
125