Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 64

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 64
greindi landflótta Rússi í París loks frá því sem gerst hafði. Þessi maður, Níkolaj Sokolov, hafði verið í hvítliðasveit sem náði Katrínarborg á sitt vald um stundarsakir skömmu eftir blóðbaðið. Honum var falið að kanna afdrif keisarans og fjölskyldu hans. Sokolov fann brátt námuna og í henni hræ hunds sem fylgt hafði húsbændum sínum í útlegð, beltis- sylgju af keisaranum og gleraugu Bodkíns læknis en líkin voru horfin. Rúmum 60 árum síðar fundust hin fyrstu. Alexander Avdonín jarðfræðingur f Sverdlovsk fékk snemma áhuga á afdrifum keisarafjölskyldunnar. Hann leitaði uppi ættingja nokkurra úr aftökusveitinni, meðal annarra son fyrirliðans, sem fékk honum afrit af skýrslu um atburðarásina. Þar kemur fram að fyrirliðinn, Jakov Júrovskí, sótti líkin í námugöngin og gróf öðru sinni á stað sem vísað er á í skýrsl- unni. Þangað fóru Avdonín og vinir hans aðfaranótt 30. maí 1979 og grófu upp úr mýri þrjár höfuðkúpur. Þar þóttust þeir meðal annars hafa fundið höfuð keisarans, sem síðar reyndist rétt. Þeir óttuðust að verða sakaðir um afskipti af ríkis- leyndarmálum og földu því beinin en grófu þau aftur næsta sumar á sama stað í trékistu með íkóni úr eir. Eftir perestrojku Gorbatsjovs leystu félagarnir frá skjóðunni og í júlí 1991 hélt hópur manna á greftrunarstaðinn, þar á meðal Avdonín og fornleifafræðingur á vegum stjórnvalda. Við uppgröft fundust beinaleifar níu af þeim ellefu persónum sem líflátnar voru 1918. 126

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.