Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 66
3. mynd. „Anna Anderson" eða Franziska Schanzkowska (til hœgri) var furðulík
Anastasíu prinsessu. (Der Spiegel.)
Georgís stórfursta, yngri bróður keisarans,
í dómkirkju í St. Pétursborg. Sameinda-
erfðafræðingar í Rússlandi og Bandaríkj-
unum greindu erfðaefni sem þar fékkst og
komust hvorir öðrum óháð að niðurstöðu
sem birt var 31. ágúst 1995: í hvatbera-
genum stórfurstans greindist sama basa-
röðin og fundist hafði í beinunum sem
talin voru úr bróður hans. Rannsóknin
staðfesti því með 100% vissu að beinin
væru úr Nikulási II keisara.
■ ÓFUNDNU SYSTKININ
Afdrif þeirra Anastasíu og Alexejs hafa
verið mörgum hugleikin. Þar sem líkams-
leifar þeirra fundust ekki komust fljótt á
kreik sögusagnir um að þau hefðu á
einhvern hátt komist undan. Trúlegra
verður samt að telja að líkin hafi týnst.
Grunur lék á að keisarinn hefði komið
miklum eignum úr landi og ýmsir hafa gert
tilkall til erfðanna. Nokkrir krónprinsar
hafa komið fram, fyrst sem Alexej en
nýverið kom meintur sonur hans til skjal-
anna og vildi setjast á valdastól í
Rússlandi.
Frægust af „Anastasíunum" er sjálfsagt
„Anna Anderson“, sem kom fram 1920 og
heimtaði síðar arf sinn. Enginn dómstóll
féllst þó á kröfuna enda spillti talsvert fyrir
konunni að hún kunni ekki orð í rússnesku
en bar við minnistapi sakir andlegs álags.
Um hana var gerð kvikmynd þar sem
Ingrid Bergman fór með titilhlutverkið.
Anastasía þessi lést 1984 og líkið var
brennt. Tíu árum síðar fengu sameinda-
erfðafræðingar samt í hendur blóð- og
vefjasýni úr henni og gátu hrakið með
óyggjandi rökum að hún hefði verið af ætt
Rómanova. í ljós kom að hún hét Franz-
iska Schanzkowska og var dóttir pólskrar
kaupakonu.
■ heimildir
Follath, Eric. Das Geheimnis der Zaren.
Ónefndur höfundur. Lesen im Ozean der Gene.
Báðar greinamar eru í þýska vikuritinu Der
Spiegel, 13/25.3.96.
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Örnólfur Thorlacius
Bjarmalandi 7
108 Reykjavík
128