Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 69

Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 69
mikilvægt að leggja ekki sömu merkingu í orðin þekking og upplýsingar, þótt hún geti vissulega skarast í sumum tilfellum. Þar sem störf mín hafa ætíð tengst jarðhita er mér tamt að taka dæmi úr þeim geira. Jarðhiti er með verðmætustu auðlindum okkar og því hljóta allai' rannsóknir á jarðhita að flokkast undir nytjarannsóknir. Þegar um það er að ræða að undirbúa nýtingu jarðhita felur vinnan við þann undirbúning í sér athugun eða könnun á tilteknu svæði eða svæðum með þekktum aðferðum. Með athuguninni fási nýjar upplýsingar um eiginleika þess svæðis eða þeirra svæða sem verið er að athuga. Markmið athug- unarinnar er að afla slíkra upplýsinga. Ef reynslan sýnir að illa gengur geta menn spurt: Þarf að bæta þekkinguna eða tæknina og, ef svo er, á hvaða sviðum? Þekkinguna má bæta með rannsóknum eða með því að fá hana frá öðrum sé hún til staðar. Hvort tveggja kostar vinnu og peninga. Ég hef unnið nokkuð við jarðhitaverkefni erlendis og með erlendum sérfræðingum þar sem tilgangur verkefnanna er vinnsla jarð- hita. Vinnan við þessi verkefni felur í sér margþættar mælingar og boranir sem miða að því að skilgreina vinnslueiginleika við- komandi svæðis og leggja mat á kostnað við að afla vatns eða gufu eftir því sem við á. Ekki mundi nokkur enskumælandi maður mér vitanlega, sem við slik verkefni vinnur, segja að hann ynni við „geothermal re- search“ heldur „geothermal investigations“ eða „geothermal development". íslendingar myndu hins vegar hafa tilhneigingu til að segja að vinnan fæli í sér jarðhitarannsóknir og þýða það yfir á ensku með „geothermal research“. Á síðasta áratug fóru fram rannsóknir í nokkrum löndum á styrk ýmissa gastegunda í jarðgufu. Með þeim var sýnt fram á að nota mætti styrk gass í gufu í gufuhverum á háhitasvæðum til að segja fyrir um hitastig vatns sem afla mætti með borunum. Hér var unt að ræða rannsókn sem bætti við þekk- inguna og þá þekkingu má nota hvar sem er í heiminum viðjarðhitaleit. Á sama tíma fóru fram athuganir á jarð- hitasvæðinu á Nesjavöllum (1. mynd). Þar var beitt þeirri þekkingu sem til staðar var til að afla upplýsinga um vinnslueiginleika jarðhitakerfisins. Niðurstaðan var virkjun og nýting jarðhitans. Hefði verið reynt að virkja jarðhitann á Nesjavöllum á sjöunda áratugnum, þegar Reykjavíkurborg keypti landið þar og jarðhitaréttinn, er ég sann- færður um að það hefði mistekist vegna þess að þekking hér á landi var ónóg. En hvernig varð þessi þekking til? Það er þýðingarmikið að svara þeirri spurningu. ■ HVAÐA AFLEIÐINGAR HEFUR MERRINGARLEYSI ORÐSINS RANNSÓKN? Gallinn við þá víðtæku merkingu sem orðið rannsókn hefur nú er sá að leikmönnum virðist oft ekki ljóst hvað við er átt þegar rætt er um rannsóknir eða hvert markmið þeirra sé. Sama virðist einnig gilda um stjórnmálamenn og ér það öllu verra. Áberandi er að það sem yfirleitt er flokkað undir hagnýtar rannsóknir hér á landi felur í raun alls ekki í sér rannsóknir. Hér skal nefnt eitt dæmi til stuðnings þessari staðhæfingu: Það sem m.a. hefur verið flokkað undir steypurannsóknir felur í sér að steypa kubba sem settir eru inn í heitan og rakan klefa og mæla hvort og þá hversu hratt og mikið kubburinn þenst út. Með þessu er aflað upplýsinga um gæði hráefnisins í steypuna. En hér er ekki um rannsókn að ræða heldur prófun. Steypurannsóknir hefðu m.a. þann lilgang að auka við þá þekkingu sem til er og varðar gæði og endingu steypu. Þessar prófanir auka ekki á þekkinguna þótt þær veiti ákveðnar upplýsingar sem vissulega hafa sitt gildi. Prófanir af þessu tagi segja ekki til um endingartíma steypunnar heldur hvort viðkomandi steypuefni uppfylli ákveðnar gæðakröfur eða staðla. Varla mundi nokkur leggja út í prófun sem tæki áratugi til að ganga úr skugga um endingu steypu. Hins vegar mætti segja fyrir um endingartímann ef kleift reyndist með rannsóknum að skilja þau efnahvörf sem verða í steinsteypu og ráða mestu um þenslu hennar og endingu. 131
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.