Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 70

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 70
 Með því að skilgreina hagnýtar rannsókn- ir á þann hátt sem almennt virðist gert er í raun hamlað á móti sköpun nýrrar þekkingar - nýsköpun. Að rannsóknir séu hagnýtar ber nefnilega með sér að sýna megi fram á það fyrirfram hvort viðkomandi „rannsókn” hafi hagnýtt gildi. Menn sjá eðlilega að allskyns prófanir eða mælingar hafi ákveðið gildi - séu hagnýtar. Hins vegar er árangurinn af leit að nýrri þekkingu óljós eðli málsins samkvæmt og þar með hagnýtt gildi óunninna rannsókna í þrengri merkingu þess orðs. ■ STjÓRNUN - VERKSTÝRING Geysileg sérhæfing einkennir raunvísindi. Hún er þess eðlis að raunvísindin eru ekki skiljanleg öðrum en þeim sem hafa ákveðna bakgrunnsþekkingu. I okkar dvergvaxna þjóðfélagi er sú krafa gjarnan gerð til raun- vísindamanna að þeir útskýri gildi rann- sókna og rannsóknarniðurstöður í almennu máli. Jafnvel þótt þeim takist vel til, skilja ef til vill fáir hvað unt er að ræða. Ráðamenn sem ekki skilja, af því að þeir búa ekki yfir raunvísindalegri þekkingu, þurfa eftir sem áður að gera upp hug sinn og ákveða hvaða rannsóknir skulu stundaðar. Útkoman hér á landi virðist oft vera sú að frumkvæðið er tekið af rannsóknarmönnum og þeim verkstýrt. Avöxturinn er sá að þekking er vannýtt og rannsóknarmönnum finnst þeim ekki boðið upp á störf sem séu krefjandi og þeir leita annað, margir til útlanda. Stjórnmálamenn velja sér oft og tíðum ráðgjafa sem tala „skiljanlegt“ mál. Þeir ganga eðlilega út frá því að allt sem ráð- gjafarnir segja sé byggt á reynslu þeirra af rannsóknum. Því miður gerist það stundum að tillögur ráðgjafanna eru bara pólitík. Afleiðingin er sú að þekking er vannýtt. Með því að kanna starfsemi rannsóknar- stofnana hér á landi, viðhorf sérfræðinga til hennar og árangurinn, má átta sig nokkuð á því hverskonar stjórnun hefur reynst best. Það væri full ástæða til að gera slíka könnun. A einni stofnun, sem ég sé ekki ástæðu til að nafngreina, hefur verkstýringu verið beitt við stjórnun aðallega þó gegnum fjár- veitingar. Það hefur leitt til þess að áhersla hefur verið lögð á hverskonar prófanir en rannsóknir setið á hakanunt. Fyrrverandi starfsmaður þessarar stofnunarinnar sagði eitt sinn við mig að þær „rannsóknir" sem hann ynni við væru í raun staðlaðar prófanir, nánast snatt. Á þessari stofnun eru aðeins 4 af 27 sérfræðingum með doktorspróf. Doktorspróf er almennt talið vera mælikvarði á hvort einstaklingur hafi sýnt fullnægjandi hæfni til að stunda rannsóknir sjálfstætt. Að vísu segir það ekkert til um hvort tiltekinn einstaklingur, sem ekki hefur lokið doktorsprófi, sé fær um að stunda rannsóknir sjálfstætt. Margar ástæður aðrar en hæfi til náms geta legið að baki því að hann fór ekki í framhaldsnám til doktorsprófs. Engu að síður hlýtur þessi mannaflasamsetning að endurspegla þörf stofnunarinnar á sérhæfðum starfskrafti að mati stjórnenda hennar. Á Orkustofnun eru tvær megindeildir, Vatnsorkudeild og Jarðhitadeild. Þessum deildunt var stýrt með mjög mismunandi hætti frá sjöunda áratugnum og fram eftir þeim níunda. Eftir það hefur ófagleg stjórn- un gegnum fjárveitingar farið sívaxandi. Á þessum tíma var gjarnan hafður sá háttur á á Vatnsorkudeild að verkefni voru útfærð af yfirstjórn og þeir ráðnir sem vildu vinna undir slíkum merkjum. Á Jarðhitadeild var lögð áhersla á að laða menn að deildinni með sem mesta þekkingu. Til þess var ætlast af þessum hópi manna að þeir notfærðu þekkingu sína og bættu við hana með það að markmiði að stuðla að aukinni nýtingu jarðhita. Þeim var ekki verkstýrt að öðru leyti, ekki sagt hvernig þeir ættu að vinna. Mismunandi stjórnunarstíll á þessum tveim deildum kemur vel fram í mannaflasam- setningunni eins og hún var þá. Um 1980 voru sárafáir sérfræðingar með doktorspróf við Vatnsorkudeild en tiltölulega miklu fleiri á Jarðhitadeild. Árangurinn af framförum á Jarðhitadeild Orkustofnunar á þessum tíma lét ekki á sér standa. Á örfáum árunt byggðist þar upp þekking sem gerði virkjun háhitasvæða 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.