Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 79

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 79
Frá skaftáreldum: Flatahraun OG Ruddi JÓN JÓNSSON eir sem farið hafa til Laka og um leið nokkuð skoðað vestur- gjá Eldborgaraða, hafa orðið að fara yfir lítið hraunbelti suður af Lambavatni, og þá naumast veitt því mikla athygli. Þó liggur slóðin á smákaila meðfram þessu hrauni. Megi menn vera að því að stíga út úr bílum eða bara að líta út um gluggann og í átt til gígaraðarinnar, kemur í ljós að hraun þetta hefur runnið upp að einum stóru gíganna sem eldri eru en frá gosinu 1783 og ég tel að heitið hafi Rauðöldur (Jón Jónsson 1990), austur með honum og myndar flata lítið eitt bungulaga gróðurlausa hraunsléttu, sem frá sér sendir mjóa totu í átt til Lambavatns. Ef farið er nokkuð vestur með norðurrönd þessa hrauns, þar staldrað við og hugað að, verður fyrir dálítil, gróft hringlaga hraun- slétta, með lítið eitt uppverpta kanta, einkum að norðan- og vestanverðu. Svo virðist sem á þessum bletti, sem er 15-25 m í þvermál og vestast á hrauninu rétt áður en því tekur að halla vestur af, séu upptök þessa hrauns. Jón Jónsson (f. 1910) lauk fil.lic.-prófi í jarðfræði frá Uppsalaháskóla árið 1958. Hann starfaði hjá Raforkumálaskrifstofunni og síðar Orkustofnun frá 1958 til 1980 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þar fékkst Jón einkum við leit að köldu og heilu vatni og síðast við gerð jarðfræðikorts af Reykjanesskaga. Á árunum 1969-1974 starfaði Jón á vegum Sameinuðu þjóðanna í Mið-Ameríku og fór síðar fjölda ferða sem ráðgjafi á þeirra vegum, einkum til Afríkulanda. Eftir að hann lét af störfum hefur hann haldið áfram rannsóknum, in.a. við Eyjafjallajökul og í nágrenni við æskuslóðirnar í Vestur-Skaftafellssýslu. Jón Jónsson er heiðursfélagi í Hinu íslénska náttúrufræðifélagi. Það hefur verið gaslítið og ollið rólega upp án þess að hlaða upp gígrima. Því hef ég nefnt það Flatahraun (1. mynd). Norðan við uppvarpið endar hraunið í þverhandar- þykkri brún ofan á þykku vikurlagi, án efa frá upphafi gossins 1783. Hraunið hefur að því er virðist runnið yfir vikurinn svo til nýfallinn og orðið til í fyrstu goshrinunni þegar „upp kom svart sandmistur og mokkur svo stór, að hann á stuttum tíma breiddi sig yfir alla Síðuna og nokkuð af Fljóts- hverfinu“ (Jón Steingrímsson 1973). Vikur- lagið er alveg við hraunröndina meira en 1,5 m þykkt, eins allt í gegn og úr vikurkornum sem eru um 1,5-2 cm í þvermál og næsta frauðkennt gler. Frá uppvarpinu liggja hraunrásir í lokuðum pípum til vesturs og suðvesturs (2. mynd) niður brekku og út á sléttu sem að sunnan er takmörkuð af Stóra- Svarti, gosmalargígnum mikla frá fyrsta gosi Eldborgarraða. Ljóst er af landslaginu að þangað gat hraunið ekki runnið nema því aðeins að upptök þess væru á áðurnefndum stað eða a.m.k. því sem næst. Lengi nokkuð eftir að ég veitti þessu hrauni sérstaka athygli var ég í nokkrum vafa um hvernig bæri að skýra tilveru þess og er að því vikið í fyrri ritgerð (Jón Jónsson 1994), en eftir margendurteknar athuganir og nokkrar mælingar tel ég nú ekki ástæðu til að efast um að þar hafi hraun, í byrjun Skaftárelda, komið upp nokkru utan við aðal gígaröðina. Það hefur myndað hrauntjörn yfir og umhverfis uppvarpið en út frá henni hafa hraunrásir legið í þrjár áttir, norður í átt Náttúrufræðingurinn 67 (2), bls. 141-143, 1997. 141

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.