Náttúrufræðingurinn - 1997, Síða 89
1
Getið nýrra sveppabóka
FRÁ GRANNLÖNDUM
Torbj0m Borgen:
SVAMPE I GR0NLAND
Fotos af Jens H. Petersen.
Redaktion: Henning Knudsen.
Atuakkiorfík, Nuuk 1993.
Grænland er næsti nágranni okkar í vestri og
norðri, mikið land, nánast eins og heimsálfa
á mælikvarða okkar litlu eyju, en mestur hluti
þess er hulinn þykkum jökli. Það er eins og
ísöldin mikla sem rfkti á norðurhveli jarðar
fyrir aðeins um 10 þúsund árum hafi dagað
uppi á Grænlandi.
Þó er hinn gróni og græni hluti Grænlands
líklega margfalt stærri en gróðurlendi
fslands. Á suðvesturhlutanum eru víðlend
svæði þakin birki-, elri- og víðikjarri, en fjall-
drapamóar, lyngheiðar og rjúpnalaufsmóar
eru útbreidd gróðurlendi þegar norðar
dregur, að ógleymdum snjódældagróðri
með dvergvöxnum víðitegundum eins og
við þekkjum hér. Þó eru flóra og gróður
Grænlands býsna ólík því sem hér þekkist,
sem stafar bæði af ólíku loftslagi og ólíkum
uppruna eða gróðursögu. Flóra Grænlands
er að stórum hluta amerísk en flóra íslands er
yfirgnæfandi evrópsk.
Það vaxa líka sveppir á Grænlandi í
ótrúlegum fjölbreytileika, allt frá suðurodda
Hvarfs til norðurstranda Pearylands sem
ekki er svo ýkja langt frá Norður-
heimskautinu. Sveppaflóran erþó að vonum
ríkulegust í suðri, einkum í birkiskógunum
og mun þar vera sambærileg við það sem
gerist hér á landi. Þá eru snjódældir með
grasvíði og tleiri víðitegundum,
rjúpnalaufsheiðar og fjalldrapamóar einnig
nokkuð auðug af sveppum.
Og nú hafa Grænlendingar eignast sína
sveppabók, hina fyrstu sem skrifuð er fyrir
almennan lesanda og notanda, því ýmislegt
hafði áður verið um grænlenska sveppi ritað
í fræðibókum og tímaritum. Danska ríkið
hefur í meira en heila öld staðið fyrir
umfangsmiklum náttúrurannsóknum á
þessu risalandi og sent þangað óteljandi
leiðangra, þar á meðal nokkra
sveppafræðinga sem hafa gert rannsóknum
sínum ítarleg skil á prenti. Má þar
sérstaklega nefna Morten Lange sem dvaldi
á SV-Grænlandi sumarið 1946 og varð
fyrstur til að safna þar og nafngreina stó-
rsveppi. Gerði hann grein fyrir þeim rann-
sóknum í þremur heftum af safnritinu
Meddelelser om Grpnland. Síðan hafa ýmsir
danskir og erlendir sveppafræðingar lagt
leið sína þangað og síðast en ekki síst hafa
Grænlendingar nú eignast sveppafræðing,
Torbjprn Borgen að nafni, sem er
aðalhöfundur umræddrar bókar. Hann er
kennari að mennt og starfi og á heima í
Paamiut (Frederiksháb) nyrst í hinni fornu
Eystribyggð íslendinga. Reyndar er hann
uppalinn í Færeyjum, lærði í Danmörku og er
vel læs á íslensku, þó ekki hafi hann dvalið
hér. Þegar hann kom til Grænlands 1978
byrjaði hann strax að kynna sér grænlenska
stórsveppi og hefur síðan tekið þátt í
nokkrum rannsóknaferðum til ýmissa hluta
þessa víðáttumikla lands, með sveppa-
fræðingum frá Danmörku og fleiri löndum.
Af nýjum bókum
Samstarfsmenn hans við gerð bókarinnar
eru vel þekktir danskir sveppafræðingar af
yngri kynslóðinni. Jens H. Petersen sem tók
flestar myndir í bókina er kennari í
sveppafræði við Árósaháskóla og hefur
nýlega ritað ágæta kennslubók um það efni
(sjá aðra ritfregn) en Henning Knudsen er
safnvörður við Grasafræðisafnið (Botanisk
Museum) í Kaupmannahöfn.
1 bókinni er 64 grænlenskum sveppa-
tegundum lýst í mynd og máli á jafn mörgum
blaðsíðum. Tekur ljósmyndin efri helming
síðunnar en frekar stutt tegundarlýsing er
þar fyrir neðan, ásamt upplýsingum um
vaxtarstaði, útbreiðslu o.fl. Ljósmyndirnar
eru langflestar skýrar og góðar og prentun
þeirra gallalaus. Þær eru allar teknar á
fundarstöðunum í náttúrulegu umhverfi,
með tilheyrandi gróðri o.s.frv.
151