Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 5

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 5
SURTSEY 35 ÁRA Surtsey er að líkindum ein þekktasta eldstöð landsins, að Heklu frátálinni. Surtseyjargosin, sem stóðu frá 14. nóvember 1963 til 5. júní 1967, eru með lærdómsríkustu eldgosum sem menn hafa getað fylgst með hér á landi. Sprengigos einkenndu Surtseyjargosin fyrst í stað, meðan þau voru neðan- sjávar, en síðan tóku við flœðihraun- gos. Alls gaus á átta stöðum í og við Surtsey. Vel var fylgst með gosunum og var talið að þetta vœri best rann- sakaða neðansjávareldgosið fram til þess tíma. argvíslegar rannsóknir hafa IV /I einnig farið fram í Surtsey eftir | V | að gosum lauk. Eyjan kom upp __________ úr sjó 15. nóvember 1963 og hefur síðan verið vöktuð bæði af jarðfræð- ingum og líffræðingum. Jarðfræðingar hafa einkum fylgst með rofi eyjarinnar, þróun jarðhitakerfisins og ummyndun lausrar gos- öskunnar í móberg (Surtseyjarfélagið 1993). Líffræðingar hafa fylgst með landnámi ýmissa lífvera, svo sem sela, fugla, há- plantna, lágplantna, skordýra og örvera (Sturla Friðriksson 1994). Sveinn P. Jakobsson (f. 1939) lauk mag.scient.- prófi í bergfræði frá Kaupmannahafnarháskóla 1969 og doktorsprófi frá sama skóla 1980. Sveinn hefur starfað sem sérfræðingur hjá Náttúrufræði- stofnun Islands síðan 1969. Hann hefur einnig verið forstöðumaður sömu stofnunar í alls tíu ár. Nú í nóvember 1998 eru 35 ár síðan Surtsey myndaðist. Af því tilefni þykir ástæða til að gera stutta grein fyrir þeim rannsóknum sem fram fara í eynni einkum með tilliti til rannsóknaleiðangra sumarsins. Landmælingar íslands tóku að beiðni Surtseyjarfélagsins loftmyndir af eynni þann 23. ágúst s.l. (sjá 1. mynd). Þrjár megin jarðmyndanir Surtseyjar sjást vel á loft- myndinni. Tveir hálfhringlaga sprengigígar eru niest áberandi á henni miðri. Þeir mynd- uðustfrá 14. nóvember 1963 til 3.apríl 1964. Gosaskan sem upprunalega var í þessum gígum hefur smám saman verið að breytast í móberg af völdum jarðhita, en móbergið er ljósgult á myndinni. Innan í stóru gígunum sjást hraungígar og frá þeim runnu hraun til suðurs og austurs á tímabilinu apríl 1964 til maí 1965 og al'tur frá ágúst 1966 til júní 1967. Norðan í eynni er mikill tangi úr lausu strandseti og fær tanginn efni sitt úr hraun- unum. Mikið er þarna af rekaviði og ýmsu rusli sem borist hefur á land. Á 1. mynd sést stór, grænn blettur sunnan til í hrauninu. Þctta er þéttur gróður áburðarkærra plöntutegunda, sem myndast hefur í mávavarpi sem þarna er (Borgþór Magnússon o.l'l. 1996). Gróðurbletturinn hefur vaxið ört á undanförnum árum. Víða í eynni, einkum þar sem sandborið er, sjást litlir, ljósir deplar. Þetta eru þúl'ur af fjöruarfa og melgresi. Fimm rannsóknaferðir voru farnar til Surtseyjar í sumar sem leið. Líffræðingar frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Náttúrul'ræðingurinn 68 (2), bls. 83-86, 1998. 83

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.