Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 7
2. mynd. Vöxtur og minnkun Surtseyjar 1963-1998. Surtsey kom upp úr sjó 15. nóvember
1963 og meðan á eldgosum stóð stœkkaði eyjan mjög ört. Eftir að gosum láuk í júní 1967
hefur Surtsey minnkað verulega afvöldum sjávarrofs. I fyrstu var rofið mjög ört en síðan
hefurjafn og þétt dregið úrþví. Verið er að útbúa nýtt kort af Surtsey eftir loftmynd frá 23.
ágúst 1998 (1. mynd) og samkvæmt því er flatarmál hennar nú 1,48 km2.
Náttúrufræðistofnun íslands dvöldust í
Surtsey dagana 20- 23. júlí. Grasafræðingar
kortlögðu útbreiðslu háplantna og flétta.
Nýjar tegundir plantna fundust og eins nýir
fundarstaðir þeirra. 47 tegundir háplantna
fundust en síðan 1965 hafa fundist alls 54
háplöntutegundir í Surtsey. Dýrafræðingur
á vegum Hringormanefndar flaug yfir Surts-
ey 25. ágúst til að fylgjast með landsel sem
hefur kæpt annað slagið á norðurtanganum
(Surtseyjarfélagið 1993).
Sjávarlíffræðingur frá Hafrannsókna-
stofnuninni heimsótti Surtsey 15. október.
Safnað var þörungum í fjörunni en alls hafa
fundist 25 tegundir þörunga þar. Þess má
geta að fyrsta plantan sem fannst í Surtsey
(1964) var þörungur. Þá var fylgst með útsel
bæði á landi og úr lofti, en útselur hefur kæpt
þarna að staðaldri á haustin.
Jarðfræðingar frá Náttúrufræðistofnun,
Orkustofnun og Náttúrustofu Suðurlands
dvöldust í Surtsey dagana 21.-24. ágúst.
Jarðhiti var mældur bæði á yfirborði innan
jarðhitasvæðisins, sem myndaðist 1967, og í
borholu þeirri sem tekin var 1979. Þá var
útbreiðsla jarðmyndana kortlögð að nýju,
en verið er að vinna nýtt jarðfræðikort af
Surtsey í mælikvarðanum 1:5.000 og mun
það koma út í árslok 1998. Síðasta kort af
Surtsey var byggt á loftmyndum teknum
1993 (Landmælingar íslands 1994).
Landmælingar íslands hafa tekið alls 42
myndir af Surtsey síðan 1964. Hér er um að
ræða einstæða röð mynda er sýnir vel vöxt
og rof eldfjallaeyjar. A 2. mynd sést hvernig
Surtsey hefur vaxið og minnkað að flatannáli
á tímabilinu 1963-1998. Eyjan var orðin 2,7
km2 í lok gossins 1967, en er nú aðeins 1,48
km2. Þrátt fyrir þetta er ekki ástæða til að
örvænta um örlög Surtseyjar; eldri Vest-
mannaeyjarnar, sem mynduðust á sama
hátt, hafa staðist sjávarrofið vel.
Félagai' úr Hellarannsóknafélagi Islands
dvöldust í Surtsey 26. ágúst til 3. september.
Einn nýr hellir fannst en þrír hellar voru kort-
lagðir nákvæmlega. I Surtsey hafa fundist
alls tíu hraunhellar, fleiri en annars staðar á
landinu, miðað við stærð svæðisins (Sig-
urður S. Jónsson & Björn Hróarsson 1990). I
sumum hellanna hafa varðveist sjaldgæfar
85