Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1998, Side 14

Náttúrufræðingurinn - 1998, Side 14
1. mynd. Hekla (r) og Selsundsfjall (rr), séðfrá Selsundi 1846. Úr grein um Heklu eftir H. von Mathiesen í Neues Jahrb. f. Mineralogie usw. 1846, bls. 46. Nákvœmari myndir eru í bók Schythes (1847). - Drawing of mts. Hekla and Selsundsfjall by H. v. Mathiesen 1846. veðrið í september 1845 (Clouston 1845a) segir klerkurinn neðanmáls um 3. september: „This morning there was a fall of ashes over all Orkney apparently volcanic, and sup- posed to have been wafted from Iceland.“ Með sömu töflu, sem birtist í öðru riti, er stutt klausa dagsett 19. september (Clouston 1845b) sem lýsir gjóskufallinu. Clouston kveður þetta hafa verið ryk líkast steinlími (Roman cement). Það fannst á fötum sem lögð voru út til bleikingar, á kálblöðum, á steinhellum og gleri og fljótandi á sjónum. Auk Orkneyja hefur hann fregnað að það hafi fallið á segl fransks herskips við Leirvík (Lerwick) sunnarlega á Hjaltlandi. Rykið var komið kl. 3-4 um morguninn, en fáeinum dögum áður hafði fólk orðið vart við brenni- steinslykt. Við þetta tækifæri rifjar Clouston upp frásögn úr bók um sögu Orkneyja, sem fyrst kom út 1805. Hér er sú frásögn tekin upp úr kafla um snjókomu í eyjunum, í síðari útgáfu bókarinnar (Barry 1808, bls. 14—15): „About forty years ago, the north wind wafted over the ocean, what is still recollected by old people, by the name of the black snow, which at the time struck the inhabitants with terror and astonishment. ... their fears were happily dispelled by an account of an erup- tion in Mount Hecla, from which, in all prob- ability, the black snow proceeded.“ Náttúrufræðingurinn T.S. Traill (1844-50) segir einnig frá Orkneyja-gjóskufallinu í september 1845 á fundi í vísindafélaginu í Edinborg hinn 15. desember það ár. Hann hefur fregnir af því frá eyjunni Rousay, norðan við Mainland, morguninn 2. septem- ber (sem er þó ólíkleg tímasetning), en daginn eftir í Kirkwall og víðar á eyjunum sem og á norðurströnd Kataness. Það hafi náð 2-4 mm þykkt. Vindur hafi þá verið á norðvestan í nokkra daga. Traill rifjar upp fyrrnefndan „svartan snjó“ og kennir Heklugosi 1766 um hann, en einnig hafi falliðgjóskaáHjaltlandi 1755 (sbr. samtíma- heimild sem Sigurður Þórarinsson vitnar til) ogígosi Skaptár Jökuls 1783. Ekki var látið þar við sitja; sýni af gjósk- unni voru send til R. Jameson prófessors í Edinborg, sem fékk gerða á henni efna- greiningu. Niðurstöður birtust um vorið (Connell 1846) og gáfu eftirfarandi sam- setningu oxíða: kísill væri 59,2%, ál 15,2%, járn 9,6%, kalsíum 4,82%, alkalímálmar 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.