Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 19
HÁKON AÐALSTEINSSON
OG GÍSLI MÁR GÍSLASON
Ahrif LANDRÆNNA þátta
Á LÍF í STRAUMVÖTNUM
Líjvist straumvatna lýtur áhrifum fjöl-
margra þátta sem rekja má til vatna-
sviðseinkenna. Jarðfrœði vatnasviðsi-
ns hefur áhrif á viðdvöl grunnvatns í
jarðlögum, sem rœður miklu um út-
leysingu efiia. Útleysing efna er
hröðust í nýlegum jarðmyndunum, en
þær hleypa einnig úrkomunni niður í
jarðlögin, þar sem hún getur haft
langa viðdvöl og þar með góðan tíma
til að taka upp steinefni. Eldri
jarðmyndanir eru yfirleitt þéttari og
innihalda lítið af lausum jarðefnum, og
þar skilar úrkoman sér því eftir
skamma viðdvöl í nœsta lœkjardrag.
Hins vegar eru gamlar jarðmyndanir
einatt grónari og með þykkari jarðveg
en þœr yngri. í skrifum um lífvist
Hákon Aðalsteinsson lauk fil.kand.-prófi í vatna-
líffræði frá Uppsalaháskóla 1974 og varði Ph.D,-
ritgerð uin svif í Mývatni við sama skóla 1979.
Hákon starfar sem fagstjóri umhverfismála á
Orkustofnun.
Gísli Már Gíslason lauk B.S.-prófi í líffræði frá
Háskóla íslands 1973 og 4. árs framhaldsnámi í
vistfræði frá HÍ sama ár. Hann varði Ph.D.-ritgerð
um vistfræði íslenskra vorflugna við háskólann í
Newcastle upon Tyne, Englandi, 1978. Gísli er
prófessor í vatnalíffræði við Háskóla íslands.
straumvatna er yfirleitt gerð grein fyrir
helstu jarðfræði- og landfrœðiþáttum
en sjaldnast dregnar af þeim nema
mjög almennar ályktanir. Hér verður
reynt að varpa Ijósi á tengsl milli helstu
einkenna vatnasviðs straumvatna og
lífríkis þeirra. Safnað hefur verið
gögnum um áburðarefni í vötnum, þétt-
leika og fjölbreytileika botndýra og
laxveiðar í ám á Islandi og þau borin
saman við vatnasviðseinkennin.
■ JARÐFRÆÐI
Jarðfræði og landslag vatnasviða ákvarða
ýmis mikilvæg einkenni straumvatna, svo
sem gerð farvegar, rennsliseiginleika og
efnainnihald árvatnsins. Island er aðallega
byggt upp af basaltgosefnum, sem að mestu
hafa komið upp á löngum sprungureinum.
Virku gosbeltin eru á mótum tveggja jarð-
skorpufleka sem fjarlægjast hvor annan og
skipta landinu í misgömul belti. Þau elstu eru
til jaðranna í austri og vestri og talið er að
elsta berg á Austfjörðum og Vestfjörðum sé
um 13-14 milljón ára gamalt (Þorleifur
Einarsson 1991). Elstu bergmyndanir frá
tertíer (>3 milljón ára) eru á Austfjörðum,
Vestfjörðum, Vesturlandi og á Norðurlandi
Náttúrufræðingurinn 68 (2), bls. 97-112, 1998.
97