Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 32
V-JÖKULSÁ, Skag.
68km£
Jökull
Vatnasvið:320km2
Fjöldi 1 500/ m2
Fjöldi 5 300/m2
Annað
13. mynd. Skýringarmyndir af helstu lífríkiseinkennum jökulár, Vestari Jtíkulsár í
Skagafirði. - A schematic representation of ecosystem characteristics in the glacial river
W-Jökulsá, Skagafjördur (N-Iceland).
■ ÁLYKTANIR
Af einstökum þáttum sem ráða afrakstri
straumvatna er líklegt að almenn gróska á
vatnasviði ánna skipti mestu máli. Til grósk-
unnar má bæði rekja aukna útleysingu efna
og aðburð lífrænna efnasambanda. Mikil-
vægustu umhverfisþættir straumvatna, auk
þeirrar umgerðar vatnsfallsins sem mótar
farveg og rennsliseiginleika, eru einfaldlega
gróðurfar og tilvist stöðuvatna á vatna-
sviðinu.
Þeir þættir sem ættu að skipta mestu máli
fyrir mat á lífríkisforsendum eru þannig
annars vegar mælikvarðar á gróskuna
(flatarmál, uppskera o.s.frv.) og hins vegar
mælikvarðar á efni sem rekja má til gróðurs-
ins og vatnanna, þ.e. lífræn efnasambönd,
bæði uppleyst og kornuð.
Þar sem telja má líklegt að jákvætt
samband sé á milli styrks lífrænna og
ólífrænna efnasambanda, er gagnlegt að
mæla styrk uppleystra ólífrænna efna, og
þar er langódýrast að notast við leiðni og
láta hana duga ef ekki er ástæða til að ætla að
styrkur einstakra efna skipti máli. Höfundar
telja þó að mælingar á lífrænum efnasam-
böndum þyrftu einnig að koma til.
■ ÞAKKIR
Eftirtaldir aðstoðuðu við söfnun gagna og
úrvinnslu: Guðrún Lárusdóttir, Ólöf Ýrr
Atladóttir, Sveinn Guðmundsson, Jón S.
Ólafsson og Þóra Hrafnsdóttir. Sigurður R.
Gíslason las handrit, einkum með tilliti til
efnafræði, Árni Einarsson efnislega og Ólöf
110