Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1998, Qupperneq 41

Náttúrufræðingurinn - 1998, Qupperneq 41
Hiti °C Hiti °C Hiti °C 0 50 100 150 200 o 20 40 60 80 100 120 140 0 20 40 60 80 100 120 5. mynd. Hitaferlar mældir í borholum á jarðhitasvœðunum á Laugamesi í Reykjavík (A), Laugalandi í Eyjafirði (B) og í Mosfellssveit (C). Beinu línurnar sýna ótruflaðan jarðhitastigul, eins og hann er mœldur í grunnum holum rétt utan jarðhitasvœðanna. I öllum tilvikum er hitastig jarðhitakerfanna hœrra en ótruflaður jarðhitastigull segir til um ofan ákveðins dýpis, en lœgra þar fyrir neðan. Hitadreifing sem þessi er talin stafa af svokallaðri hræringu grunnvatns. nágrenni Laugarnessvæðisins, eins og sýnt er á 5. mynd. Þetta bendir til þess að grunn- vatnsstreymi hafi ekki raskað berghitanum. Með því að framlengja hitastigulinn má áætla hver hiti sé á meira dýpi, þar sem berg er þétt. Af 5. mynd má lesa að í efri hluta Laugarnessvæðisins er hitastig hærra en ótruflaður jarðhitastigull segir til um. Neðan 850 m dýpis er það hins vegar lægra. Svona hitadreifing er talin stafa af svokallaðri hrær- ingu grunnvatns (Sveinbjörn Björnsson 1980, Gunnar Böðvarsson 1982). Kalt grunn- vatn berst djúpt niður í berggrunninn, kælir hann en hitnar jafnframt sjálft. Þar sem heitt vatn er eðlisléttara en kalt rís það upp í efri og kaldari jarðlög og hitar þau upp. Þannig flytur hræring varma úr dýpri jarðlögum í grynnri jarðlög. Varmi jarðhitakerfanna er því fenginn úr heitu bergi á nokkru dýpi í rótum jarðhitakerfisins sjálfs. Þess vegna verður að líta á jarðhitakerfin sem varma- námur en ekki sem endurnýjanlega auðlind. Þar sem hitastig í dýpri jarðlögum utan jarðhitasvæðanna er iðulega hærra en innan þeirra hlýtur niðurstreymi kalds grunnvatns að vera mjög nálægt eða jafnvel innan svæðanna. Sú hitadreifing sem djúpar borholur sýna og hér hefur verið lýst er ekki í samræmi við líkan Trausta af lághitanum eða túlkun Braga á tvívetnisinnihaldi lághitavatnsins. Hvernig má skýra það að á miklu dýpi sé jarðhitasvæðið nokkurs konar kuldapollur, ef írennsli í það er ofan af hálendi á miklu dýpi? Hvernig átti vatnið að kólna djúpt í jarðhitasvæðunum? Og hvernig má túlka tvívetnisinnihald jarðhitavatnsins? Gunnar Böðvarsson (1982) benti á þann möguleika að vatnið geti vissulega verið ættað innan úr landi, en þá þurfi það að renna grunnt í berggrunni að jarðhitasvæðinu þar sem það steypist niður og hitnar. Hitadreifing sambærileg við Laugarnes- svæðið er á fleiri lághitasvæðum þar sem djúpar holur hafa verið boraðar, meðal annars í Mosfellssveit og að Laugalandi í Eyjafirði (5. mynd). SAMTÚLKUN GAGNA AF NOKKRUM JARÐHITASVÆÐUM Síðustu tvo áratugina hefur vitneskja um grunnvatnsrennsli og jarðefnafræði ýmissa jarðhitasvæða landsins stóraukist. Þessi þekking hefur fyrst og fremst fengist með borunum á jarðhitasvæðum. Hér á eftir tökum við dæmi um þrjú jarðhitasvæði sem sýna gildi þess að túlkun gagna á samsætum og öðrum kenniefnum, ásamt fleiri jarðfræði- legum atriðum, sé felld saman í eitt Ifkan. 119
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.