Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1998, Qupperneq 53

Náttúrufræðingurinn - 1998, Qupperneq 53
fyrst yfirlitsgrein í Náttúrufrœðingnum 1936 og önnur í riti Landverndar um votlendi 1975, en meginritgerðin birtist á ensku í ritum Vísindafélags lslendinga 1975. Rannsóknir Steindórs á íslenskum gróðursamfélögum mynduðu grunninn að þeirri flokkun gróðurs sem notuð var við gróðurkortagerð af hálendinu sem hafin var árið 1955. Björn Jóhannesson kom þessari kortagerð af stað en síðan var hún lengst af undir stjórn Ingva Þorsteins- sonar. Steindór ferðaðist frá 1955 til 1966 á hverju sumri með þeim kortagerðar- mönnum sem gróðurfarslegur ráðunautur. Að lokum tók hann þátt í gróðurkorta- leiðöngrum til Grœnlands árin 1977- 1980. ISLENSKA FLÓRAN Þótt flestar af rannsóknaferðum Steindórs vœrufyrst og fremst farnar til rannsókna á gróðursamfélögum, þá nýtti hann þœr œtíð einnig til að kanna útbreiðslu tegundanna í landinu. Því má með nokkrum rétti segja að hann hafi verið tvíefldur í rannsókn- unum. Um niðurstöðurnar afmörgumfyrstu svœðunum sem hann rannsakaði birtust tvœr ritgerðir; annars vegar um gróður- félögin en hins vegar um flóruna. Þannig birti hann gögn um Landmannaafrétt á Fjallabaksleið sín í hvoru heftinu af Greinum Vísindafélags íslendinga 1935 og 1937; um gróður á Melrakkasléttu birti hann grein í Botanisk Tidsskrift 1936 en um flóru Melrakkasléttu í Náttúrufrœð- ingnum 1941; um flóruna við norðanvert ísafjarðardjúp birti liann grein í Botanisk Tidsskrift 1940 en um gróðursamfélög sama svœðis í Acta Naturalia Islandica 1946. Sumar þessar svæðaflórur, þar á meðal flóra Flóans í Árnessýslu og flóra Rangárvallasýslu, voru aldrei birtar en eru til í handriti. Þá virðist Steindór snemma hafa komið sér upp lausblaðakerfi í möppum fyrir allar tegundir íslenskra plantna, þar sem hann fœrði inn alla fundarstaði fyrir liverja tegund eftir að heim var komið úr hverri ferð. Gilti þá einu hvort tegundirnar voru algengar eða fágœtar, allt var skráð. Samkvœmt rithönd þessara skráa virðist kona Steindórs, Kristbjörg Dúadóttir, oft hafa verið honum hjálpleg við aðfœra inn í þessar möppur. Auk þessa birtust nœr árlega allar merkari nýjungar um nýjar eða fágœtar tegundir og útbreiðslu þeirra. I fyrstu voru slíkar upplýsingar birtar í Skýrslum hins íslenska Náttúrufrœðifélags, en síðar í Náttúrufræðingnum og í 3. útgáfu Flóru Islands. Síðast birti hann slík gögn í tímaritinu Flóru 1964-1968, enda voru flórugreinar og plöntulistar ekki vinsælt efni í Náttúrufrœðingnum um þœr mundir; fyrir kom að listarnir voru klipptir af greinunum í ritstjórn og ekki birtir og misstu þœr þannig gildi sitt. Sumt af þessu efni hefur aldrei birst og eru þau gögn aðgengileg í áðurnefndum möppum, sem Steindór afhenti Þjóðskjalasafni til varðveislu ásamt afriti til Náttúrufrœði- stofnunar. Þessi gögn um útbreiðslu plantna á Islandi voru Steindóri nauðsynleg, ásamt öðrum prentuðum heimildum, sem grunnur fyrir útbreiðslukort sem mörg hver urðu undirstaða kenninga lians um gróðursögu landsins, sem fjallað er um hér nœst á eftir. Groðursaga Steindór Steindórsson var mjög vel að sér um sögu lands og þjóðar, eins og oft kom fram hjá honum bæði í rœðu og riti. Því er ekki að undra þótt gróðursagan hafi einnig verið honum hugleikin. Liggja eftir hann margar ritgerðir um það efni og má t.d. nefna sögu skóganna, sem hann hefur rakið í mörgum greinum, og sögu akur- yrkjunnar í landinu. En það sem hæst berá þessu sviði og mun væntanlega lengst halda nafiú hans á lofti, eru rit hans um aldur og innflutning íslensku flórunnar og einkum þá með tilliti til þess livort og livaða plöntur hafa lifað af ísöldina hér á landi. Ekki erþað þó vegna þess að þetta sé beinlínis merkilegra en margt annað sem luinn gerði heldur af því hversu umdeildar þessar kenningar hans voru og vöktu því athygli. 131
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.